Þingeyri
Íbúafjöldi: 277
Þingeyri stendur undir Sandafelli, við rætur fjallgarðsins milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar sem oft er nefndur Vestfirsku alparnir. Kaldbakur (998 metrar) hæsta fjall Vestfjarða er miðpunktur þessa svæðis og gnæfir yfir umhverfi sitt. Akfær vegur liggur upp á Sandafellið og er þar útsýnisskífa. Íbúar Þingeyrar eru nú tæplega 280 talsins. Þorpið tilheyrði áður Þingeyrarhreppi, en varð hluti af Ísafjarðarbæ við sameiningu sveitarfélaga árið 1996.
Sagan
Nánasta umhverfi Þingeyrar er sögusvið einnar þekktustu sögu miðaldabókmennta Íslendinga, Gísla sögu Súrssonar. Búseta á sjálfri eyrinni hófst snemma, þar mun hafa verið þingstaður og verslunarstaður frá fornu fari. Kauptún tók að myndast á Þingeyri um miðja 19. öld. Þar var m.a. bækistöð bandarískra lúðuveiðimanna og eignnig voru franskir duggarar þar tíðir gestir. Um tíma var rekin norsk hvalveiðistöð á Framnesi í norðanverðum firðinum. Þingeyri hafði því lengi yfir sér mjög alþjóðlegan blæ.
Eins og í flestum sjávarþorpum á Vestfjörðum tengist aðalatvinna Þingeyringa sjávarútvegi, en ferðaþjónusta hefur einnig færst mjög í aukana á síðari árum.
Ferðaþjónusta
Á Þingeyri eru gistihús, tjaldsvæði og veitingastaðir. Aðstaða til íþróttaiðkana er góð, hvort sem er utan- eða innandyra. Nýleg íþróttamiðstöð er á staðnum með sundlaug og íþróttahúsi. Rétt utan við þorpið er 9 holu golfvöllur og á Söndum er góð aðstaða fyrir hestamenn. Þar má m.a. finna nýja og glæsilega reiðhöll, löglegan keppnisvöll, 300 m kappreiðbraut, gott áhorfendasvæði og tamninga- og kennslugerði
Elsta starfandi vélsmiðja landsins, Vélsmiðja Guðmundar J Sigurssonar & co, er á Þingeyri. Smiðjan tók til starfa árið 1913 og er nánast í upprunalegu formi. Hún er nú opin gestum, sem eins konar lifandi safn. Á Þingeyri er búið að byggja upp víkingasvæði og er þar haldin árleg hátíð, víkingahátíðin Dýrafjarðardagar.
Að Núpi í Dýrafirði er elsti skrúðgarður landsins; Skrúður. Garðurinn var stofnaður um 1909 af séra Sigtryggi Guðlaugssyni sem þá var prestur á Núpi. Garðurinn var nýlega endurunnin í upphaflegri mynd.
Frá Þingeyri er stutt í afar fallegar gönguleiðir, enda eru Vestfirsku Aplarnir nánast á bæjarhlaðinu. Þar er að finna hæsta fjall Vestfjarða, Kaldbak, og er hann tiltölulega auðveldur uppgöngu fyrir vant fólk í sæmilegu formi. Hin ævintýralega leið um Svalvoga á milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar er vinsæl aksturs- hjóla- og gönguleið, en rétt er að hafa samband við Vegagerðina og kanna ástand vegarins áður en lagt er af stað á bíl.



