- Um Vestfirði
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Tálknafjörður

Vefsíða: www.talknafjordur.is
Íbúafjöldi: 293
Tálknafjörður

Þorpið Tálknafjörður er snyrtilegt og nútímalegt sjávarpláss, sem stendur við samnefndan fjörð á milli Patreksfjarðar og Arnarfjarðar. Það er byggt að mestu leyti í landi Tungujarðanna við norðanvert Hópið, innsta hluta fjarðarins. Tálknafjörður er sérstakt sveitarfélag og á korti lítur það eiginlega út eins og eyja inni í miðju sveitarfélaginu Vesturbyggð. Þegar kosið var um sameiningu sveitarfélaganna á þessu svæði árið 1994 felldu íbúar Tálknafjarðar tillöguna og héldu því stöðu sinni óbreyttri, en Barðastrandarhreppur, Rauðasandshreppur, Bíldudalshreppur og Patrekshreppur sameinuðust í Vesturbyggð. Íbúar Tálknafjarðarhrepps eru nú um 300 talsins.

Sagan
Saga Tálknafjarðar markast að nokkru leyti af því að þar er frábær höfn frá náttúrunnar hendi. Sveinseyraroddi er tangi sem lokar hluta fjarðarins og veitir um leið sjól fyrir úthafsöldunni, auk þess sem aðdýpi er mikið. Erlendir fiskimenn á fyrri öldum áttuðu sig fljótlega á þessum kjöraðstæðum, og höfðu til dæmis Hollendingar aðstöðu fyrir fiskiskip sín í Tálknafirði á sínum tíma.
Í kringum aldamótin 1900 starfræktu norðmenn hvalveiðistöð á Suðureyri, við sunnanverðan Tálknafjörð. Starfsemi í stöðinni lagðist af fljótlega upp úr aldamótunum, en á árunum 1930-1940 var stöðin aftur tekin í gagnið, þá af íslenskum aðilum. Má enn sjá minjar um stöðina og starfsemi hannar á Sveinseyri.

Á fimmta áratug síðustu aldar var byggt hraðfyrstihús á Tálknafirði, og á sjötta áratugnum keypti frystihúsið stálbáta sem urðu til þess að auka mjög á umsvifin. Sjávarútvegur hefur ætíð verið helsti atvinnuvegur staðarins og í seinni tíð hefur fiskeldi líka sótt í sig veðrið. Heitar uppsprettur við norðanverðan fjörðinn hafa m.a. nýst vel við fiskeldið.

Ferðaþjónusta
Á Tálknafirði eru gistiheimili, veitingastaðir, prýðis gott tjaldsvæði og ýmis önnur þjónusta fyrir ferðamenn. Við tjaldsvæðið eru útisundlaug, af mörgum álitin sú besta á Vestfjörðum. Þá eru heitir pottar í fjallshlíðinni utar í firðinum og eru þeir frábær stoppistöð fyrir ferðalúna gesti. Pottarnir voru byggðir á sínum tíma af vertíðarsjómönnum sem þráðu að hvíla lúin bein í náttúrulegum potti. Þar er svolítil búningsaðstaða og er öllum heimilt að nota pottana og aðstöðuna án endurgjalds.

Frá Tálknafirði er stutt yfir á Patreksfjörð og Bíldudal, rétt um klukkustundarakstur út á Látrabjarg og á Rauðasand og klukkustundar akstur út í Selárdal í Arnarfirði.  Á Tálknafirði er hægt að leigja sér báta og búnað til að fara í sjóstangveiði.

Myndasafn

Tálknafjörður
Get Adobe Flash player