- Um Vestfirði
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Súðavík

Vefsíða: www.sudavik.is
Íbúafjöldi: 182
Súðavík

Súðavík er lítið kauptún sem liggur við vestanverðan Álftafjörð í 20 km fjarlægð frá Ísafirði. Segja má að í dag skiptist kauptúnið í tvo hluta. Eldri hlutann, sem lenti að stórum hluta undir snjóflóði árið 1995, og nýrri hlutann, sem nú hýsir hina eiginlegu byggð.  Íbúar í Súðavík eru tæplega 200 talsins.

Sagan
Samkvæmt Landnámu voru það þau Eyvindur kné og Þuríður rymgylta kona hans sem námu land í Álftafirði og Seyðisfirði. Frá þeim tíma lifðu bændur í Álftafirði á kvikfjárrækt og fiskveiðum. Fiskurinn var lífsnauðsynleg viðbót við búskapinn, enda takmarkað láglendi til nýtingar. Þéttbýli tók að myndast í Súðavík upp úr miðri 19. öld en Súðavík var heppilegur staður til búsetu bæði vegna nálægðar við fiskimiðin og landrýmis.

Langeyri, rétt innan við byggðina, hefur löngum verið vettvangur umsvifa og framkvæmda. Hermt er að þar hafi Þjóðverjar haft aðstöðu fyrir báta sína, fiskimenn  og kaupmenn fyrr á öldum, en síðar hafi hollenskir duggarar og loks englendingar gert eyrina að bækistöð sinni. Til eru gamlar sagnir um bardaga á milli þýskra og enskra um aðsetur á Langeyri. Árið 1890 komu hins vegar norskir hvalfangarar til Langeyrar og reistu þar all mikla hvalveiðistöð. Önnur slík stöð var svo reist litlu innar í Álftafirði, á Dvergasteinseyri.

Í janúar 1995 féll stórt snjóflóð á byggðina í Súðavík. Fórust þar 14 manns og fjöldi húsa eyðilagðist. Í kjölfar snjóflóðsins stóðu íbúar Súðavíkur frammi fyrir því að ákveða hvort hefja ætti uppbyggingu á nýjan leik. Samþykkt var að færa byggðina og byggja þorpið upp á ný á öruggum stað í stað þess að reisa varnarmannvirki. Haustið 1996 voru komnir grunnar af 51 nýju húsi í nýrri byggð rétt innan við gömlu byggðina. Lokið var við smíði íbúðanna seinna um veturinn, en einnig voru átta hús úr eldri byggðinni flutt þangað.


Ferðaþjónusta
Í Súðavík er góð þjónusta við ferðafólk. Þegar hin eiginlega byggð var endurreist á nýjum stað var eldri hlutanum breytt í sumarbyggð þar sem hægt er að fá gistingu í herbergjum, íbúðum eða húsum, eftir hentugleika. Í bænum er einnig afar gott tjaldsvæði og veitingastaður. 

Fjölskyldufólk á ferð um Norðanverða Vestfirði ætti ekki að láta hjá líða að koma við í Raggagarði og leyfa börnunum og leika sér á þessum einstaka leikvelli, sem risið hefur fyrir elju einnar konu til minningar um son hennar.
Sportveiðimenn ættu einnig að fá eitthvað fyrir sinn snúð í Súðavík, en þjónusta við sjóstangveiðifólk hefur farið ört vaxandi á staðnum hin síðari ár.

Margar gönguleiðir eru í boði fyrir vana jafnt sem óvana. Hægt er að ganga uppfrá kauptúninu og yfir í Arnardal eftir merktri gönguleið sem liggur yfir fjöllin er aðskilja Skutulsfjörð frá Álftafirði. Þeir sem ekki eru vanir fjallagöngum geta auðveldlega fundið sér leið við hæfi í botni Álftafjarðar, sem út af fyrir sig er einstök náttúruperla.

Myndasafn

Súðavík Súðavík
Get Adobe Flash player