Reykhólar
Íbúafjöldi: 266
Reykhólahreppur varð til í núverandi mynd árið 1987, með sameiningu allra hreppa Austur-Barðastrandasýslu. Sveitarfélagið nær nú allt frá Gilsfirði vestur í Kjálkafjörð (?) og hefur innan marka sinna margar eyjanna á Breiðafirði, m.a. Flatey. Stærð sveitarfélagsins er alls ríflega 1.103 m2 og íbúafjöldinn árið 2008 var 266. Af þeim bjuggu 132 í þorpinu sjálfu, en 134 í dreifbýli.
Sagan
Reykhólar og Reykhólasveit koma víða við í sögu Íslands, m.a. í Grettissögu, en á svæðinu eru mörg örnefni sem minna á veru Grettis þar um slóðir.
Reykhólar þóttu mikil hlunnindajörð vegna sjávarfangs og æðavarps, en margar eyjar fylgdu einnig jörðinni. Þetta var því eitt af höfuðbólum landsins og bjuggu þar margir höfðingjar og guðorðamenn. Upp úr 1970 myndaðist þorp á Reykhólum og búa þar nú um 120 manns.
Króksfjarðarnes kemur einnig víða við sögu, m.a. í Landnámabók og ýmsir nálægir staðir eru nefndir í Gull-Þóris sögu. Króksfjarðarnes fékk verslunarréttindi árið 1895 og þar var starfrækt þjóðþekkt kaupfélag sem stofnað var árið 1911 og þjónaði heimafólki og ferðalöngum um langt árabil.
Aðal atvinnuvegir í Reykhólahreppi eru tveir. Annars vegar er það landbúnaður, hins vegar þörungaverksmiðjan sem starfrækt er í þorpinu á Reykhólum og er sú eina sinnar tegundar á landinu. Verksmiðjan nýtir þaragróðurinn á grunnsævi Breiðafjarðar og jarðhitann til að þurrka þaramjölið, en á svæðinu er jarðhiti, sá mesti á Vestfjörðum.
Ferðaþjónusta
Þjónusta við ferðafólk hefur farið vaxandi á svæðinu og er þar m.a. að finna nokkur gistihús, tjaldsvæði, upplýsingamiðstöð, veitingastað, Bátasafn Breiðafjarðar, og hlunnindasýninguna á Reykhólum. Þar í þorpinu er einnig nýleg útisundlaug, Grettislaug, og í Djúpadal er afar notaleg innilaug.
Í Reykhólasveit er að finna afar fjölskrúðugt fuglalíf og eitt allra besta fuglaskoðunarsvæði hérlendis. Þar eru einnig margar fallegar gönguleiðir og fjölmargir athyglisverðir og sögufrægir staðir.
Reykhólahreppur er aðeins í rúmlega 200km fjarlægð frá Reykjavík. Einstök upplifun á samspili náttúru, sjávar, sveitar og einstæðs mannlífs er því aðeins steinsnar frá skarkala höfuðborgarinnar.



