Patreksfjörður
Íbúafjöldi: 618
Byggðin við norðanverðan Patreksfjörð teygir sig frá Geirseyri, út með brattri fjallshlíð og niður á Vatneyri. Áður gekk þessi byggð undir nafninu Eyrar eða Vatneyri, en á síðari árum hefur nafnið Patreksfjörður fest við þorpið.
Sagan
Á Patreksfirði hefur verið stunduð verslun frá fornu fari og gerðu Danir Vatneyri að viðurkenndum verslunarstað árið 1604. Þorpsmyndun hófst á síðasta hluta 19 aldar þegar þurrabúðir risu á eyrinni. Athafnamaðurinn Markús Snæbjörnsson úr Dufansdal keypti Geirseyri um þetta leyti og hóf þilskipaútgerð. Árið 1874 byggði Markús hús sem kallað er Gamla Steinhúsið, en það var fyrsta steinhúsið sem reist var á Vestfjörðum. Seinna, eða í kringum 1925, hófst togaraútgerð í plássinu á vegum Ólafs Jóhannessonar verslunarstjóra.
Patreksfjarðarkirkja var byggð á árunum 1904 1907 eftir teikningu Sigurðar Magnússonar, sem þá var héraðslæknir á Patreksfirði. Kirkjan er steinsteypt og er aðeins vitað um tvær kirkjur steinsteyptar sem eru eldri, Bíldudalskirkju og Ingjaldshólskirkju á Hellissandi. Predikunarstóll kirkjunnar er skreyttur mósaíkmyndum eftir listamanninn Erró.
Patreksfjörður tilheyrði áður Patrekshreppi, en er nú hluti sveitarfélagsins Vesturbyggðar. Íbúar á Patreksfirði eru um 620 talsins og hafa fiskveiðar og vinnsla löngum verið aðal atvinnuvegur þorpsbúa.
Ferðaþjónusta
Á Patreksfirði er öll nauðsynleg þjónusta til staðar, svo sem gististaðir, tjaldsvæði, veitingastaðir og verslanir. Í hinni nýju íþróttamiðstöð Brattahlíð er útisundlaug og líkamsrækt, og í næsta nágrenni þorpsins er golfvöllur. Nokkur gróska hefur verið í uppbyggingu á þjónustu við ferðafólk á Patreksfirði og má nefna að nú nýlega hófst starfsemi Sjóræningjahússins, sem er safn og fræðslusetur um sjóraán við Íslandsstrendur. Einnig er nú farið að bjóða upp á skipulagðar útsýnissiglingar frá Patreksfirði.


