- Um Vestfirði
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Ísafjörður

Vefsíða: www.isafjordur.is
Íbúafjöldi: 2704
Ísafjörður

Ísafjörður er fjölmennasti byggðakjarni Vestfjarða. Bærinn stendur á Eyri við Skutulsfjörð, en byggðin teygir sig einnig upp í hlíðar Eyrarfjalls og inn í botn fjarðarins.  Ísafjörður er girtur háum fjöllum á þrjár hliðar, en þrír dalir ganga inn af Skutulsfirði, vestastur er Tungudalur, þá Dagverðardalur og sá austasti er Engidalur. Nýjasta bæjarhverfið er í fjarðarbotninum á skeiði á milli Dagverðardals og Tungudals. Á Ísafirði er ein besta höfn landsins frá náttúrunnar hendi, enda hefur sjávarútvegur ávallt verið einn aðalatvinnuvegur Ísfirðinga. Ísafjarðarkaupstaður varð hluti af Ísafjarðarbæ við sameiningu sveitarfélaga árið 1996. Íbúar á Ísafirði eru nú um 2700 talsins.

Sagan
Samkvæmt Landnámu voru landnámsmenn í Skutulsfirði tveir; Helgi Hrólfsson og Þórólfur brækir. Sagan segir að Helgi hafi fundið skutul rekinn í flæðarmálinu og nefnt fjörðinn eftir honum. Lítið er vitað um Skutulsfirðinga á miðöldum annað en að á Eyri var kirkja árið 1200. Verslun hófst á eyrinni ekki seinna en um miðja 16. öld. Á tímum einokunarverslunar Dana var Skutulsfjarðareyri miklvægur verslunarstaður, og standa þar enn fjögur hús sem reist voru af einokunarversluninni á árunum 1757-1784.

Íbúum á Ísafirði tók ekki að fjölga neitt af ráði fyrr en einokun var aflétt á Íslandi og Skutulsfjarðareyri fékk kaupstaðarréttindi. Þá komu norskir kaupmenn og reistu hús í Hæstakaupstað og nokkru síðar kom enn einn hópur kaupmanna, nú frá Sönderborg, og reisti sér aðstöðu þar sem kallað er Miðkaupstaður. Kaupstaðirnir á eyrinni voru því orðnir þrír, Neðsti-, Mið- og Hæstikaupstaður. Skutulsfjarðareyri missti kaupstaðarréttindi sín árið 1816 en endurheimti þau að nýju árið 1866 og nefndist eftir það Ísafjarðarkaupstaður.

Á síðustu áratugum 19. aldar var Ísafjörður með stærstu kaupstöðum landsins enda tryggði nálægðin við gjöful fiskimið næga atvinnu. Til sögunnar komu öflug fyrirtæki á borð við Ásgeirsverslun, sem sigldu með saltfisk beint til Miðjarðarhafsins. Þá var Ísafjörður einnig miðsvæðis í hringiðu norskra hvalveiðistöðva. Frá Ísafirði voru því stundaðar beinar siglingar til ýmissa landa í Evrópu, en það var einmitt Ásgeirsverslun sem eignaðist fyrsta gufuknúna millilandaskip Íslendinga.

Þegar kom fram á 20. öldina var Ísafjörður enn í fararbroddi útgerðar á Íslandi. Þar var fyrst sett vél í fiskibát og þaðan voru fyrstu veiðar á rækju stundaðar.

Ísafjörður hefur lengi verið þekktur fyrir blómlegt menningarlíf. Bókasafn var stofnað árið 1899 og fyrsti tónlistarskóli landsins var stofnaður á Ísafirði árið 1911 og hefur verið áberandi í bæjarlífinu allar götur síðan.

Ferðaþjónusta
Öll þjónusta er til staðar í bænum. Í bænum eru tvö hótel (þar af annað sumarhótel) og tvö gistihús auk annarra gistimöguleika. Tvö tjaldsvæði eru á Ísafirði, annað í Tungudal, hitt við Menntaskólann á Ísafirði, en heimavist skólans er nýtt sem Edduhótel yfir sumartímann. Nokkrir veitingastaðir eru í bænum, kaffihús og skemmtistaðir.

Frá Ísafirði er boðið upp á siglingar um Djúp og inn í friðlandið á Hornströndum. Í bænum er einnig að finna hverskyns afþreyingu, svo sem kajakleigu, golfvöll, púttvöll og margar frábærar gönguleiðir rétt við bæjardyrnar.

Skíðasvæði Ísfirðinga eru í Tungudal og á Seljalandsdal og teljast með þeim bestu á landinu. Í bænum er einnig gömul og notaleg innisundlaug þar sem gott er að láta líða úr sér ferðaþreytuna.

Myndasafn

Ísafjörður Ísafjörður Ísafjörður
Get Adobe Flash player