- Um Vestfirði
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Hólmavík

Vefsíða: www.holmavik.is
Íbúafjöldi: 364
Hólmavík

Hólmavík við Steingrímsfjörð sunnanverðan er stærsta kauptún á Ströndum. Íbúar þar eru rúmlega 350 og er helsti atvinnuvegurinn sjávarútvegur, auk ýmis konar þjónustu við sjávarútveginn, landbúnað og ferðamenn.

Sagan
Áður en Hólmavíkurþorp varð til var um tíma þurrabúðarlóð í vestanverðri Hólmavíkinni, austan undir Höfðanum.  Í ársbyrjun 1890 varð Hólmavík löggiltur verslunarstaður og fáum árum síðar, eða 1897, lét kaupmaðurinn R. P. Riis reisa þar vandað verslunar- og íbúðarhús. Riis húsið þótti afar glæsilegt og stendur það enn og hýsir nú þann nafntogaða veitingastað Kaffi Riis.

Verslunarfélag Steingrímsfjarðar, forveri kaupfélagsins, var stofnað í ársbyrjun 1898. Félagið varð fyrir verulegu tjóni árið 1931 þegar nær allar byggingar þess og vörulager urðu eldi að bráð. Eitt nýlegt, steinsteypt geymsluhús stóð eftir og var  verslað þar á meðan endurbygging annarra húsa fór fram. Þetta steinhús hýsir nú hið víðfræga Galdrasafn á Hólmavík. Kaupfélagið jafnaði sig hins vegar fljótt á áfallinu og er enn í dag öflugur atvinnurekandi á Ströndum.

Ferðaþjónusta
Á Hólmavík er að finna alla nauðsynlega þjónustu við ferðafólk. Þar eru gististaðir, gott tjaldsvæði og veitingasatðir. Þar er einnig boðið upp á fjölbreytta afþreyingu. Í þorpinu er ný útisundlaug og í Skeljavík er að finna 9 holu golfvöll. Galdrasafnið á Hólmavík er löngu landsþekkt og er afar vinsæll viðkomustaður ferðamanna, en þar er fjallað um þjóðtrú og galdrafárið á 17. öld. Safnið er staðsett á Hólmavík, en annar sýningastaður þess, Kotbýli kuklarans, er á Klúku í Bjarnafirði.  Þá er Sauðfjársetur, lifandi og skemmtilegt safn um sauðfjárbúskap fyrr og nú, skammt frá þorpinu og víða má einnig finna gönguleiðir við allra hæfi.

Myndasafn

Hólmavík Hólmavík Hólmavík
Get Adobe Flash player