Hnífsdalur
Íbúafjöldi: 229
Hnífsdalur er yst í Skutulsfirði, í fimm kílómetra fjarlægð frá Ísafirði. Þetta er dæmigert fiskiþorp sem óx upp í kringum útgerð og fiskvinnslu, en þar er nú eitt stærsta fiskvinnslufyrirtæki Vestfjarða.
Útverðir Hnífsdals eru fjöllin Bakkahyrna og Búðarhyrna, en sagt er að þorpið dragi nafn sitt af hinni hvössu brún Bakkahyrnu er glöggir menn segja að líkist hnífsblaði.
Sagan
Saga Hnífsdals er fyrst og fremst tengd harðduglegum sjósóknurum og fiskvinnslufólki. Á öldum fyrr voru aðeins tveir bæir í dalnum, en á 19. öld tók að myndast þar þorp. Barnakennsla hófst í þorpinu árið 1882 og árið 1939 hóf hraðfrystihús starfsemi sína á staðnum.
Mörg snjóflóð hafa fallið úr fjallinu Búðarhyrnu, ofan þorpsins, og hið örlagaríkasta féll 18. febrúar 1910 en þá fórust 20 manns og 12 slösuðust.
Hnífsdalur sameinaðist Ísafjarðarkaupstað árið 1971 og nú hluti Ísafjarðarbæjar, sem varð til við sameiningu sveitarfélaga árið 1996.
Ferðaþjónusta
Í Hnífsdal er ekki rekin nein eiginleg ferðaþjónusta. Allt umhverfið er hins vegar afar aðlaðandi fyrir gönguhrólfa og útivistarfólk. Inn af þorpinu liggur dalurinn sjálfur, u.þ.b. 5km að lengd með fallegri á, Langá, er hlykkjast eftir honum endlilöngum. Hægt er að ganga eftir vegarslóða fram dalinn og yfir heiði til Bolungarvíkur. Einnig er hægt að ganga sama slóða en víkja af leið yfir svokallaða Þjófa og er þá komið niður í Seljalandsdal í Skutulsfirði. Þeir sem eru óvanir göngu í fjallendi ættu að láta sér nægja að ganga heiðina til Bolungarvíkur, en hinum, sem eru vanari, finnst eflaust leiðin yfir Þjófa skemmtilegri.
Undir Búðarhyrnu má enn sjá mörg þau hús er mynduðu þorpið í Hnífsdal í byrjun tuttugustu aldarinnar og finnst mörgum mjög áhugavert að ganga þar um, skoða gömlu húsin og ganga eftir fjörunni , sem áður var athafnasvæði útgerða, fiskvinnslu og árabáta.
Núna eru hafnar framkvæmdir við gerð jarðgangna frá Hnífsdal til Bolungarvíkur og þá munu eflaust fleiri en nokkru sinni áður upplifa þennan einstaka dal með öllum sínum tindum, fjöllum, og hvilftum.

