- Um Vestfirði
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Flateyri

Vefsíða: www.isafjordur.is
Íbúafjöldi: 275
Flateyri

Þorpið Flateyri stendur við norðanverðan Önundarfjörð. Ofan við þorpið er fjallið Eyrarfjall, en þaðan féll snjóflóðið mikla haustið 1995 með þeim afleiðingum að 20 manns fórust. Nú hefur verið gerður mikill varnargarður við rætur fjallsins, til verndar byggðinni. Íbúar á Flateyri eru nú um 280 talsins. Þorpið tilheyrði áður Flateyrarhreppi, en varð hluti af Ísafjarðarbæ við sameiningu sveitarfélaga árið 1996.

Sagan
Verslun hefur verið stunduð á Flateyri frá því um 1790. Árið 1889 reisti norski athafnamaðurinn Hans Ellefsen hvalveiðistöð að Sólbakka við Flateyri og varð hún ein stærsta stöð sinnar tegundar við Norður-Atlantshaf. Stöðin starfaði þó ekki ýkja lengi því árið 1901 brann hún til grunna og var aldrei opnuð aftur. Ellefsen flutti burt með starfsemi sína og færði Hannesi Hafstein, ráðherra íbúðarhús sitt að gjöf. Sumir segja raunar að hann hafi selt Hannesi húsið á eina krónu, eða fimm krónur. En hvað sem satt er í því máli þá var húsið flutt til Reykjavíkur, stendur við Tjarnargötu og er í daglegu tali kallað Ráðherrabústaðurinn.

Flateyri var á sínum tíma heimahöfn frægra hákarlaveiðimanna, en í dag eru fiskvinnsla og útgerð helstu stoðir atvinnulífsins.

Ferðaþjónusta
Á Flateyri er boðið upp á gistingu, tjaldsvæði og veitingar. Þar má líka finna tvö söfn, Alþjóðlega brúðusafnið og Gömlu bókabúðina, en í henni má sjá sýningu um þætti úr sögu Flateyrar auk þess sem íbúð kaupmannsins er til sýnis. Þá rekur handverkshópurinn Purka sölubúð í Félagsbæ. Á Flateyri er starfrækt kajakaleiga, en einnig eru fallegar gönguleiðir víða í nágrenninu og fuglalíf í Önundarfirði fjölskrúðugt. Ekki má heldur gleyma sandfjörunni í Holti, sem er afar vinsæl á góðviðrisdögum. Þar fer árlega fram sandkastalakeppni þar sem kynslóðirnar koma saman og reisa glæsihallir og önnur kúnstverk úr sandi.

Myndasafn

Flateyri Flateyri Flateyri
Get Adobe Flash player