Drangsnes
Íbúafjöldi: 65
Drangsnes er lítið þorp á Selströnd, yst við norðanverðan Steingrímsfjörð. Þorpið er eina þéttbýlið í Kaldrananeshreppi. Drangsnes dregur nafn sitt af sérkennilegum steindrangi sem stendur yst í þorpinu og heitir Kerling. Þjóðsagan segir að þetta hafi verið eitt af tröllunum þremur, sem reyndu að grafa Vestfirði frá meginlandinu.
Sagan
Drangsnes er fyrst og fremst útgerðarbær og byggja flestir íbúa afkomu sína á veiðum og vinnslu. Þéttbýli hefur ekki verið lengi á Drangsnesi, en það tók að myndast um 1925. Árið 1930 voru heimilin orðin 11 talsins, með 66 íbúum. Fólksfjölgun varð svo töluverð næstu árin. Árið 1944 var vígður barnaskóli á Drangsnesi, en húsið þjónar einnig sem kapella.
Árið 1996 fannst heitt vatn við borun í miðju þorpinu og var lögð hitaveita í öll hús.
Ferðaþjónusta
Á Drangsnesi er að finna alla almenna þjónustu við ferðafólk. Þar eru gistihús, veitingastaður og tjaldsvæði. Í þorpinu er ný útusundlaug með vaðlaug, heitum potti og gufubaði. Einnig eru heitir pottar í fjöruborðinu neðan við þorpið.
Frá Drangsnesi er hægt að komast í siglingar út í Grímsey á Steingrímsfirði. Aðeins er um 10 mínútna sigling út í eyjuna, en þar gefst fólki kostur á að skoða stóra lundabyggð. Einnig er boðið upp á sjóstangveiði og hvalaskoðun.
Í nágrenni við Drangsnes, á Strákatanga, voru Baskar með hvalveiðistöð á 17. öld. Þar hófst fornleifauppgröftur haustið 2005.
Í nágrenni Drangsness er að finna margar fallegar gönguleiðir.



