- Um Vestfirði
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Borðeyri

Vefsíða:
Íbúafjöldi: 32
Borðeyri
Borðeyri stendur við Hrútafjörð á Ströndum og er eitt fámennasta þorp landsins með ríflega 30 íbúa.

Sagan
Borðeyri varð löggiltur verslunarstaður í desember 1849 að tillögu Jóns Sigurðssonar, en fyrr á öldum var Borðeyri í tölu meiriháttar siglinga- og kauphafna. Í Vatnsdæla sögu er frá því sagt hvernig nafn eyrarinnar er til komið. Þar segir að þegar Ingimundur gamli fór í landaleit, sumarið eftir að hann kom til Íslands, hafi hann fundið þar nýrekið viðarborð og því nefnt eyrina Borðeyri.

Föst verslun hófst á Borðeyri upp úr 1960 þegar Pétur Eggerz reisti þar fyrsta verslunarhúsið. Fleiri kaupmenn ráku verslun á staðnum, m.a. Richard P. Riis. Riis-verslun var rekin á Borðeyri til ársins 1930 en þá keypti Kaupfélag Hrútfirðinga hana og hafði þar verslun til áramótanna 2004-2005.
 
Að minnsta kosti tveir Borðeyringar hafa orðið þekkt nöfn í Íslandssögunni. Það eru þeir Sigurður Eggerz, ráðherra, og Þorvaldur Skúlason listmálari.

Ferðaþjónusta
Á Borðeyri er rekið gistihús, en einnig er þar að finna tjaldsvæði, sparisjóð og véla-, bíla- og dekkjaverkstæði. Þorpið er í u.þ.b. 10 km fjarlægð frá veitingaskálanum Staðarskála.

Myndasafn

Borðeyri
Get Adobe Flash player