- Um Vestfirði
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Bolungarvík

Vefsíða: www.bolungarvik.is
Íbúafjöldi: 897
Bolungarvík

Bolungarvík er sjávarpláss, nyrst í vestanverðu Ísafjarðardjúpi og er í dag nyrsta byggð Vestfjarða. Bolungarvík afmarkast af Traðarhyrnu að norðan en Óshyrnu að sunnan. Upp með víkinni liggja tveir dalir, Syðridalur og Tungudalur. Fjallið Ernir skilur á milli þeirra. Íbúar í Bolungarvík eru um 900 talsins.

Sagan
Samkvæmt Landnámu var Þuríður Sundafyllir landnámsmaður Bolungarvíkur ásamt syni sínum Völu-Steini.  Bolungarvík er talin vera elsta verstöð landsins og er hennar víða getið í fornum heimildum. Framan af var byggðin nær eingöngu í dölum og í Skálavík. Næst sjónum, á Bolungarvíkurmölum, var búseta hins vegar vertíðarbundin. Um aldamótin 1900 fór að myndast þorp við sjávarsíðuna. Þá reis kirkja, barnaskóli, stúkuhús, íshús og margt fleira, auk þess sem verslanir voru stofnaðar, sem og sparisjóður og bókasafn. Árið 1950 komst Bolungarvík í vegasamband við Ísafjörð með opnun vegarins um Óshlíð. Nú hálfri öld síðar á að gera samgöngur til Bolungarvíkur greiðari og öruggari með gerð Óshlíðarganga. Bolungarvík hlaut kaupstaðarréttindi árið 1974.

Ferðaþjónusta
Í Bolungarvík nýtur ferðafólk allrar þjónustu. Þar eru gististaðir, veitingastaðir og tjaldsvæði, auk þess sem boðið er upp á mikla og fjölbreytta afþreyingu. Í bænum er góð íþróttaaðstaða; íþróttahús, innisundlaug með útipottum og vatnsrennibraut, auk þess sem 18 holu golfvöllur er í Syðridal, örstutt frá bænum. Skammt frá bænum er einnig hið þekkta safn Ósvör, sem er endurgerð sjóbúð og minjasafn um lífið í verstöð. Í Bolungarvík er einnig Náttúrugripasafn sem vert er að skoða. Þar er líka starfrækt bátafyrirtæki sem siglir með farþega inn á Hornstrandafriðlandið og aðliggjandi svæði.

Bolungarvík er fagur bær í fallegu bæjarstæði, en svæðið í kring er ekki síðra. Frá Bolungarvík er hægt að fara margar skemmtilegar leiðir annaðhvort fótgangandi eða akandi.
 
Á leið til Skálvíkur, sem er falleg vík vestan við Bolungarvík, liggur mjög góður malarvegur upp á Bolafjall. Þaðan er hrikalegt útsýni til allra átta og í góðu veðri er það engu líkt. Þaðan sést yfir í Jökulfirði og yfir Ísafjarðardjúp. Þeir sem eru lofthræddir ættu að fara varlega en als ekki að láta það aftra för á fjallið og kynnast ótrúlegri fegurð. Því hefur verið fleygt manna á milli að við sérstök skilyrði sjáist jafnvel alla leið til Grænlands frá Bolafjalli en við seljum það ekki dýrara en við keyptum það. En því ekki að kanna málið?

Skálavík er vík er liggur vestan við Bolungarvík og þangað liggur góður malarvegur er nær nánast niður í fjöru í víkinni. Víkin í Skálavík er mjög falleg. Þeir sem setjast niður við víkina og horfa í opið Norður-Atlantshafið geta auðveldlega gleymt stað og stund og látið dáleiðast í öldugjálfrinu.
Í suðurátt frá Bolungarvík er grösugur dalur er heitir Syðridalur. Þar er stöðuvatn með nokkurri veiði. Upp úr Syðridalnum liggur tilvalin gönguleið yfir heiði til Hnífsdals og þaðan er einnig hægt að fara yfir Þjófa og koma niður í Skutulsfjörð. Leiðin, hvor sem valin er, býður upp á mikið útsýni. Fyrir óvana getur gangan tekið nokkra klukkutíma en vel þess virði. Tærir ferskir lækir og fallegar lautir eru við hvert spor á heiðinni og ofarlega Bolungarvíkur megin er gömul stífla er ennþá sinnir mikilvægu hlutverki.

Ljóst er að þeir sem áhuga hafa á að sækja Bolungarvík heim ættu að gefa sér góðan tíma því margt er í boði fyrir ferðalanga á láði, í lofti og á legi.

Myndasafn

Bolungarvík Bolungarvík Bolungarvík
Get Adobe Flash player