Bíldudalur
Íbúafjöldi: 178
Þorpið Bíldudalur stendur við Arnarfjörð sunnanverðan, við Bíldudalsvog. Þorpið tilheyrði áður Bíldudalshreppi, en er nú hluti af sveitarfélaginu Vesturbyggð. Árið 2008 voru íbúar Bíldudals 178 talsins.
Sagan
Bíldudalur á sér langa og merka sögu. Hann er í landnámi Ketils Þorbjarnarsonar ilbreiðs, sem sagður er hafa numið Arnarfjarðardali frá Kópanesi til Dufansdals.
Fyrstu þekktu heimildir um verslun á Bíldudal eru frá árinu 1614. Eftir að verslunareinokun Dana var aflétt var Ólafur Þórðarson Thorlacius á Bíldudal (1762-1815) einn þekktasti verslunar- og athafnamaður landsins. Hann hóf þilskipaútgerð og sigldi m.a. með saltfisk til Spánar. Annar aðsópsmikill athafnamaður á Bíldudal var Pétur Jens Thorsteinsson sem byggði upp verslunarveldi sitt um og eftir árið 1880. Pétri fylgdi mesta uppgangstímabil í sögu staðarins. Hann gerði út fiski- og farskip, reisti verslunarhús, íshús og margt fleira. Guðmundur, sonur Péturs, er betur þekktur sem listmálarinn Muggur.
Rækju- og bolfiskveiðar hafa lengi verið stærstu þættir í atvinnulífi Bíldudals, en þessir atvinnuvegir hafa orðið fyrir nokkrum skakkaföllum á síðustu árum. Árið 2007 tók til starfa kalkþörungaverksmiðja í þorpinu og er hún fyrsta fyrirtæki sinnar tegundar á Íslandi. Kalkþörungar eru m.a. notaðir í framleiðslu dýrafóðurs, matvæla og í lyfja- og snyrtivöruiðnaði.. Sömuleiðis koma þeir að miklu gagni við hreinsun útblásturs frá verksmiðjum og til hreinsunar á súru vatni.
Ferðaþjónusta
Á Bíldudal er að finna gistiheimili, íbúða gistingu, veitingasölu, siglingar á sjóstöng og söguslóðir ásamt söfnum. Í íþróttamiðstöð bæjarins, Byltu, er íþróttasalur, gufubað og heitur pottur ásamt tjaldsvæði. Einnig er 9 holu golfvöllur skammt frá þorpinu. Flugvöllur er nokkru innar í firðinum og í Reykjafirði er lítil sundlaug og jarðgerður heitur pottur með vatni úr náttúrulegri uppsprettu.
Á Bíldudal er að finna áhugavert tónlistarsafn, Melódíur minninganna, sem Jón Kr. Ólafsson söngvari opnaði á heimili sínu árið 2000. Skrímslasafn sem opnað var sumarið 2009, Gallerí Dynjanda og í miðju þorpinu er gömul smiðja sem er nú eins konar minjasafn.
Bílddælingar standa fyrir veglegum bæjarhátíðum á hverju ári. Annars vegar er þar um að ræða hátíðina Bíldudals grænar, sem fram fer annað hvert ár, en þess á milli er haldin hátíðin Hálf baun. Á hátíðum þessum er mikið lagt upp úr tónlistarviðburðum, leiklist og fjölskylduskemmtunum þar sem allir geta tekið þátt.


