- Afþreying og staðir
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share
 

Skipulagning á funda og ráðstefnuferðum



 

Rannsóknanámssjóður

Það er að mörgu að huga þegar skipuleggja þarf viðburði eins og fundi og ráðstefnur. Fagleg þjónusta, góðir afþreyingamöguleikar, hentugir fundarsalir, friður og

afslappað umhverfi og síðast en ekki síst góð  skipulagning.


Því er mikilvægt að leita til fagaðila þegar skipuleggja þarf slíka viðburði en bæði ferðaskrifstofan Vesturferðir og Flugfélag Íslands taka að sér að skipuleggja fundi og ráðstefnur á Ísafirði og í nágrenni.




 

Vesturferðir - Ferðaskrifstofa Vesturferðir - Ferðaskrifstofa Vesturferðir - Ferðaskrifstofa

Vesturferðir - Ferðaskrifstofa

Opna 1
Location: Ferðaskrifstofa á Ísafirði sem hefur mikla reynslu af skipulagningu og framkvæmd funda og ráðstefna

Vesturferðir

Aðalstræti 7, 400 Ísafjörður

S: 456-5111

www.vesturferdir.is

Vesturferðir er vestfirsk ferðaskrifstofa sem starfar allt árið og hefur að skipa starfsfólki með mikla reynslu af skipulagningu og framkvæmd hvers konar funda og ráðstefna, eins og að útvega fundaraðstöðu og gistingu, skipuleggja ferðir fyrir fundargesti, veitingar og ýmiskonar afþreyingu.Mikilvægt er að samræma öll þau fjölmörgu atriði sem snúa að undirbúningi funda og ráðstefna þannig að framkvæmdin verði eins hnökralaus og kostur er. Þar hafa Vesturferðir reynsluna og þekkinguna sem til þarf.

Vesturferðir sérhæfa sig einnig í dægradvöl fyrir maka ráðstefnugesta og eru möguleikar á margvíslegum ferðum og uppákomum á svæðinu sem gera dölina ánægjulega og eftirminnilega.

Other places of interest in the area
print | Close
Flugfélag Íslands

Flugfélag Íslands

Opna 1
Location: Flugfélag Íslands býður fyrirtækjum upp á skipulagningu stuttra funda- og ráðstefnuferða.

Flugfélag Íslands

Reykjavíkurflugvelli

S: 570 3075
www.flugfelag.is

Flugfélag Íslands er öflugt flugfélag sem auk innanlandsflugs á Íslandi þjónar vest-norrænu löndunum, Grænlandi og Færeyjum. Á Ísafjarðarflugvelli er ein megin þjónustumiðstöð innanlandsflugs á landinu og er flogið að meðaltali tvisvar á dag milli Ísafjarðar og Reykjavíkur allan ársins hring.

Flugfélag Íslands býður fyrirtækjum upp á skipulagningu stuttra funda- og ráðstefnuferða. Boðið er upp á fundarsali vel búna tækjum, veitingaþjónustu og annað sem fyrirtæki þurfa til að geta haldið árangursríkan fund í friði frá amstri dagsins. Spara má bæði tíma og fyrirhöfn með því að nota fyrirtækjaþjónustu Flugfélagsins þegar funda þarf.

Other places of interest in the area
print | Close
Get Adobe Flash player