Afþreying og Samgöngur

Þegar kemur að afþreyingu er af nógu að taka á Ísafirði og í nágrenni og þegar brjóta á upp daginn eftir langa fundasetu eru ótal möguleikar í boði. Kajak, gönguferðir,
skútusiglingar, sjóstöng, leikhús, sigling á víkingaskipi, allt sem hugurinn þráir og meira til.
Vestfirðir eru þekkir um allan heim fyrir stórfenglega náttúru og það er einmitt nálægðin við náttúruna sem gerir fundi og ráðstefnur á Ísafirði og í nágrenni svona eftirsóknaverða, en það þarf bókstaflega ekki nema að rétta út höndina til að komast í snertingu við ósnortna náttúru Vestfjarða. Upplifun í náttúrunni með hópinn þinn er annar heimur út af fyrir sig og ómetanleg til að fullkomna daginn.
Vesturferðir - Ferðaskrifstofa
Opna 1Vesturferðir
Aðalstræti 7, 400 Ísafjörður
S: 456-5111
www.vesturferdir.is
Vesturferðir er vestfirsk ferðaskrifstofa sem starfar allt árið og hefur að skipa starfsfólki með mikla reynslu af skipulagningu og framkvæmd hvers konar funda og ráðstefna, eins og að útvega fundaraðstöðu og gistingu, skipuleggja ferðir fyrir fundargesti, veitingar og ýmiskonar afþreyingu.Mikilvægt er að samræma öll þau fjölmörgu atriði sem snúa að undirbúningi funda og ráðstefna þannig að framkvæmdin verði eins hnökralaus og kostur er. Þar hafa Vesturferðir reynsluna og þekkinguna sem til þarf.
Vesturferðir sérhæfa sig einnig í dægradvöl fyrir maka ráðstefnugesta og eru möguleikar á margvíslegum ferðum og uppákomum á svæðinu sem gera dölina ánægjulega og eftirminnilega.
Blossi – Sjóstöng í Önundarfirði
Opna 1Blossi – Sjóstöng í Önundarfirði
Drafnargata 6, 425 Flateyri
S: 456-7671
Frá miðjum júní fram í september er hægt að fara í siglingu um Önundarfjörð á bátnum Blossa Ís. Á siglingu um Önundarfjörð eru það ekki einungis hrikaleg hamrabeltin í hinum háa fjallasal og litadýrð sem heilla, heldur einnig fjölskrúðugt fuglalíf. Fyrst og fremst um að ræða íslenska sjófugla og eru allar nánari upplýsingar um þá að finna um borð í Blossa. Seli er að finna á þessum slóðum og hvali kann jafnvel að bera fyrir augu - þótt engu sé lofað!
Um borð er allur búnaður til veiða, einungis þarf að taka með sér hlífðarfatnað.
Ferð á sjóstöng tekur 1 til 3 tíma.
Borea Adventures - skútusiglingar og þemaferðir
Opna 1Hlíðarvegur 38, 400 Ísafjörður
S.8993817
info@boreaadventures.com
www.boreaadventures.com
Borea Adventures er ævintýrafyrirtæki á Ísafirði sem býður upp á ævintýraferðir með leiðsögn fyrir minni og stærri hópa.
Fyrirtækið á og rekur Auroru, stærstu seglskútu Íslands sem hefur öll þægindi fyrir allt að 10 manna hópa sem gefst tækifæri á að sigla um norðanverða Vestfirði frá mars til lok september. Hægt er að fara í dagsferðir eða gista um borð í eina eða fleiri nætur, fara í gönguferðir, skoða dýralífið og fuglabjörgin eða skella sér á kajak innan um forvitna seli og fugla.
Borea Adventures býður auk þess upp á fjölbreytt úrval dagsferða út frá Ísafirði eins og gönguferðir yfir fjöll og firnindi,
2ja-6 tíma kajakferðir um friðsæla firði, gönguferð á Kaldbak, hæsta fjall Vestfjarða og margt fleira. Einnig er hægt að sérsníða ferðir fyrir hópa af ýmsum stærðum.
Borea Adventures býður einungis upp á hressa og reynslumikla leiðsögumenn sem tryggir að allir fari heim með bros á vör.
Other places of interest in the areaF&S hópferðabílar
Opna 1F&S hópferðabílar
Vallargötu 15, 470 Þingeyri
S: 893-1058
F&S hópferðabílar gera út frá Þingeyri en starfsvæði þeirra nær yfir alla Vestfirði og í raun víðar ef því er að skipta. Fyrirtækið hefur yfir að ráða bílum fyrir litla eða stóra hóp. Starfsmenn eru vel staðkunnugir og boðnir og búnir til að leiðbeina ókunnugum um öngstræti Vestfjarða og þá földu leyndardóma sem eru utan alfaraleiðar.
Til að mynda er ferðalag um svokallaðan Svalvogahring, frá Dýrafirði til Arnarfjarða og til baka, upplifun sem enginn getur gleymt. Fjölmargar aðrar áhugaverðar akstursleiðir eru í boði í nágrenninu og er sjálfsagt að hafa samband og fá nánari útlistanir.
Kómedíuleikhúsið
Opna 1Kómedíuleikhúsið
Túngötu 17, 400 Ísafirði
S: 891-7025
Kómedíuleikhúsið er fyrsta og eina atvinnuleikhúsið á Vestfjörðum. Uppsetningar leikhússins á verkum eins og Gísla Súrssyni og Dimmalimm hafa vakið gríðarlega lukku um alla Vestfirði og í raun miklu víðar. Gísli Súrsson hefur ferðast víða um land, verið sýndur um 200 sinnum og hlotið verðlaun á alþjóðlegum leiklistarhátíðum í Þýskalandi og í Albaníu. Leikhúsið sér árlega um stjórn einleikjahátíðarinnar Act alone sem haldin er á Ísafirði þar sem aðgangur er ókeypis. Þá hefur leikhúsið gefið út fimm hljóðbækur þar sem fluttar eru þjóðsögur víðsvegar að af Vestfjörðum.
Kómedíuleikhúsið á í fórum sínum fjölbreytt skemmtiatriði fyrir fólk á aldrinum 1 – 102 ára og er því tilvalin kostur fyrir þá sem vilja bjóða upp á veglega skemmtun í sínum ferðum.
Víkingasvæðið Þingeyri
Opna 1S: 863-2412
Gísla saga Súrssonar spannar stórt svæði af fjörðunum og þar er sögustöðunum lýst af kunnáttu og nákvæmni. Allt fram á 20. öldina voru atvinnuhættir á þessum slóðum hinir sömu og voru á dögum Gísla Súrssonar. Þegar svo tækni nútímans hóf innreið sína á Vestfirði, voru sumir staðir þegar komnir í eyði. Þess vegna líta ýmsir sögustaðanna nánast eins út og þeir gerðu á meðan Gísli Súrsson gekk þar um.
Vegna hinnar ósnortnu náttúru sem þú getur svo víða notið á Vestfjörðum, hefur þú tækifæri til að komast í snertingu við söguþrungna fortíð svæðisins. Á Þingeyri er búið að byggja upp Víkingasvæði með útivistarsvæði sem saman stendur af sviði, bekkjum og borðum og grillaðstöðu og er aðstaðan mynduð úr hringhleðslu úr grjóti. Þá er tilvalið að fara með hópinn í siglingu með Víkingaskipinu Vésteini.
Yogaljósið
Opna 1Í hjarta Ísafjarðar er til húsa yoga-og meðferðarmiðstöð sem heitir Ljósið Þitt. Ljósið þitt var stofnað í september 2008 en á bak við fyrirtækið standa aðilar með mjög mikla reynslu í yoga, hómópatíu og höfuðbeina-og spjaldhryggsmeðferð. Þar er boðið upp á opna yogatíma, pilates og detox helgarnámskeið svo e-ð sé nefnt en einnig er í boði instaklingsmeðferðir í hómópatíu og höfuðbeina-og spjaldhryggsmeðferð. Þá hefur Yogaljósið staðið fyrir útiyoga í stórkostlegri náttúru Ísafjarðar.
Það er tilvalið fyrir maka ráðstefnugesta að skella sér í Ljósyoga en ekki síður mikilvægt fyrir funda og ráðstefnugestina sjálfa að gefa sér tíma til að hlaða orku sem veitir þann innblástur og orku sem þarf til þess að gera fundinn sem árangusríkastan.
Other places of interest in the area















