- Afþreying og staðir
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share
 

Fundir og Ráðstefnur á Ísafirði og nágrenni



 

Á Ísafirði og í nágrenni má finna allt sem til þarf fyrir ráðstefnu- og fundahöld af ýmsu tagi. Vissulega má finna slíka aðstöðu víðar á landinu, en það er margt sem svæðið hefur uppá að bjóða sem vandfundið er annars staðar. Erfitt er að finna annan stað þar sem hægt er að njóta vinnufriðar í fagurri náttúru en vera á sama tíma steinsnar frá veitinga- og kaffihúsum, verslunum og iðandi mannlífi.


Glöggt er gests augað og hefur það komið mörgum aðkomumanninum á óvart hversu mikill stórborgarbragur getur verið á ekki stærri stað en Ísafirði. Öflugur miðbæjarkjarni, heilu hverfi gamalla húsa og mikil þjónustulund og gestrisni bæjarbúa er það sem kannski helst einkennir Ísafjörð.


Eins öflugur og Ísafjörður er þá þurfa allir góða nágranna. Bæirnir í kring; Bolungarvík, Súðavík, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri eru ómissandi hluti af heildarmyndinni. Fiskurinn, fólkið og félagslífið eru það sem byggði bæina upp og heldur þeim við. Rómantík sjávarþorpsins er allsráðandi á þessum stöðum og innblásnir af henni hafa heimamenn byggt upp góða aðstöðu svo aðrir geti fengið að njóta þess sama.


Það er að mörgu að huga þegar skipuleggja þarf viðburði eins og fundi og ráðstefnur. Fagleg þjónusta, góðir afþreyingamöguleikar, hentugir fundasalir, friður og afslappað umhverfi og síðast en ekki síst góð skipulagning. Því er mikilvægt að leita til fagaðila þega skipulegga þarf slíka viðburði en bæði ferðaskrifstofan Vesturferðir og Flugfélag Íslands taka að sér að skipuleggja fundi og ráðstefnur á Ísafirði og í nágrenni.


 
 










 Gisting og Veitingar


 Afþreying og Samgöngur
 Fundarsalir
 Skipulagning






  Á N-Vestfjörðum er mikið úrval gistingar sem hennta flestum hópum, allt frá notalegum gistiheimilum til glæsilegs hótels.

Ýmis afþreying er í boði á Vestfjörðum sem hægt er að tengja stærri og minni ráðstefnum og fundum
Á N-Vestfjörðum eru fjölmargir fundarsalir með fullkminni aðstöðu fyrir fundi og ráðstefnur
Vesturferðir á Ísafirði er ferðaskrifstofa með áralanga reynslu í skipulagningu ráðstefna af öllum stærðum.
   
Get Adobe Flash player