- Afþreying og staðir
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Hið óvænta í Vestrinu

Hið óvænta í Vestrinu

Surprise in the West

EagleFjord býður ykkur velkomin til Vestfjarða í fjögurra daga ævintýra ferð þar sem náttúran spilar sína fegurstu tóna.



Ferðalýsing:
Ferðin miðast við 16 til 26 farþega, ferðatími er frá 1. október til 1. júní.

Gist er í íbúðum þar sem öll helstu þægindi eru fyrir hendi. Íbúðirnar eru annars vegar fyrir fjóra í tveimur svefnherbergjum og hins vegar fyrir 8 í fjórum svefnherbergjum. Öll herbergi eru tveggja manna, uppábúin rúm. Raðað er niður í íbúðir eftir óskum hverju sinni.

Morgunverður er framreiddur á Veitingastaðnum Vegamótum Bíldudal sem er í um 600 metra fjarlægð frá gististað. Rútan sem ferðast er með er ávalt til staðar þar sem við á. Leiðsögumaður er með í allri ferðinni.

Það sem þarf að hafa með sér á vit ævintýra er; góðir gönguskór, hlýjan útifatnað, sundföt og góða skapið. Vera kann að einstakir liðir ferðarinnar breytist að teknu tilliti til veðurs en að öllu jöfnu verður ferðin eins og hér er lýst.
 

Innifalið í verði er eftirfarandi:

  1. Ferðir frá og til Reykjavíkur svo og allar ferðir milli staða.
  2. Íbúða gisting í þrjár nætur á Bíldudal.
  3. Leiðsögn samkvæmt ferðalýsingu.
  4. Aðgöngumiðar að viðkomustöðum.
  5. Matur og drykkir með mat.




Fyrsti dagur.



Brottför frá Hóteli í Reykjavík kl. 9.00.
Ekið sem leið liggur til Stykkishólms. Fyrsti viðkomustaður er Bjarnarhöfn þar sem hákarlasafnið er heimsótt og á boðstólum er hákarl skolaður niður með brennivíni, mjög sérstök heimsókn sem lætur fólk ekki ósnortið.

Komið er til Stykkishólms kl. 12.30 og snæddur léttur hádegisverður á Narfeyrarstofu. http://www.narfeyrarstofa.is

Að lokknum hádegisverði er Vatnasafnið heimsótt www.libraryofwater.is/flash/main.html.

Brottför með ferjunni Baldri kl. 15.00 (www.saeferdir.is). Á leiðinni er brú skipsins heimsótt þar sem skipstjórinn tekur á móti gestum. Á siglingunni yfir fjörðinn er boðið upp á góðgæti sem unnið er úr afurðum Breiðafjarðar.

Komið til Brjánslækjar kl. 18.00 og ekið sem leið liggur til Bíldudals.

Komið til Bíldudals kl. 19.00

Þegar gestir hafa komið sér fyrir er snæddur kvöldverður á Veitingastaðnum Vegamótum. vegamot.123.is/home



Annar dagur.
Morgunverður kl. 9.00. að loknum morgunverði fá allir lánaða vetrargalla, húfu og vettlinga.

Ekið með rútu til Tálknafjarðar og út með firðinum að norðanverðu þar sem Bakkar heita. Nú er farið í fjöruferð, gengið um sandstrendur og klappir, notið frábærrar náttúru og umhverfis.

Að lokinni fjöruferð er grillveisla, léttur hádegisverður, þar sem ýmislegt sjávarfang er á matseðlinum. Grillað og snætt er í gömlu flugskýli sem útbúið hefur verið til veisluhalds. 

Að loknum hádegisverði er komið að einkastundinni sem tileinkuð er hverjum og einum, saman í pörum eða einstaklingurinn einn með sjálfum sér. Hver og einn dregur sér stað til að eiga notalega stund á við sjávarsíðuna, hlusta á hafið og njóta frábærs útsýnis, í hlýjum fötum, húfu og vettlingum, með teppi og notalega tilfinningu eftir góða máltíð.

Nú ert þú komin á stað þar sem ekkert er nema náttúran sjálf, ekkert mannvirki í augsýn, ekkert hljóð nema söngur náttúrunnar. Hlustið og horfið, lofið huganum að reika. 

Einkastundin varir í um 45 mín., en þá er hringt bjöllu sem kallar á til brottfarar.

Komið er til Bíldudals um kl. 17.00 og um kvöldið snæddur kvöldverður á Veitingastaðnum Vegamótum. 

Að loknum kvöldverði og þegar allir eru tilbúnir er haldið í Pollinn, heitar laugar út í náttúrunni staðsettar í Tálknafirði. þar sem léttar veitingar eru fram bornar og dagurinn ræddur á meðan horft er til himins. Því ef himininn er ekki skýjaður þá munu stjörnur og jafnvel norðurljós blika.

Baðsloppar með í för til að fara í þegar haldið er heim, fátt er notalegra en að þurfa ekki að klæða sig eftir heita laug.



Þriðji dagur.
Morgunverður kl. 9.00. Vetrargallar, húfur og vettlingar ásamt sundfötum og baðslopp þarf að hafa með sér við brottför. 

Að hausti er ekki líklegt að um ófærð verði að ræða en þegar kemur fram í desember og allt fram í apríl mun verða snjór á leiðinni, því er farið í jeppaferð þennan dag því það verður ekið um slóðir sem ekki eru færar rútum. Ekið er sem leið liggur til Breiðuvíkur þar sem snæddur er léttur hádegisverður. www.breidavik.is 

Já nú er ekið sem leið liggur út á Látrabjarg, vestasta odda Evrópu. Þó enginn fugl sitji upp í bjarginu er náttúran þarna hrikaleg og frábær.

Þegar komið er út á Látrabjarg er gengið í um eina og hálfa klukkustund og fræðst um bjargið. Að lokinni gönguferð er ekið til Breiðuvíkur þar sem ekið er um sandströnd sem er um 7. km löng, verbúðir skoðaðar og fylgst með briminu við ströndina. Áður en Breiðavík er kvödd er á boðstólum kaffi og meðlæti því Patreksfjörður er næsti viðkomustaður. Já Sjóræningjar búa þar og taka á móti okkur í gamalli vélsmiðju þar sem kveikt hefur verið upp í arineldi og þriggja rétta kvöldverður bíður okkar. www.sjoraeningjahusid.is 

Dagurinn endar í Pollinum í Tálknafirði þar sem smá tár í aðra tánna er í boði og ef allt gengur eftir dansa norðurljósin aftur þetta kvöld.

Heimferðin er svo þegar gott þykir og allir eru tilbúnir.



Fjórði dagur, heimferð.
Morgunverður kl. 10.00 til 12.00 frjáls tími.

Brottför kl 15.00, ekið um Tálknafjörð og Patreksfjörð til Brjámslækjar. 

Brottför ferjunnar Baldurs frá Brjánslæk kl 18.00

Kvöldverður er snæddur um borð í ferjunni Baldri á leiðinni til Stykkishólms

Komið til Reykjavíkur kl. 23.00


Nánari upplýsingar og panntanir er að finna á www.bildudalur.is


Frekari upplýsingar um einstaka staði í ferðinni eru t.d.:
http://www.narfeyrarstofa.is
www.libraryofwater.is/flash/main.html
www.saeferdir.is 
vegamot.123.is/home 
www.breidavik.is 
www.sjoraeningjahusid.is

 

EagleFjord Ferðaþjónusta Bíldudal

www.bildudalur.is jon@bildudalur.is

354-894-1684

September 2009, Jón Þórðarson


Back
Get Adobe Flash player