Hápunktar
Þótt vitaskuld sé erfitt að gera upp á milli allra þeirra heillandi staða sem Vestfirðir hafa uppá að bjóða, þá höfum við tekið hér saman lista yfir það sem kalla má hápunktana í fjórðungnum. Héðan ætti enginn að fara fyrr en hann hefur heimsótt þá alla!
Dynjandi
OpnaDynjandi er mestur fossa á Vestfjörðum. Hann má finna í Dynjandisvogi fyrir botni Arnarfjarðar. Fossinn og umhverfi hans hans var friðlýst sem náttúruvætti árið 1981, enda um einstaka náttúruperlu að ræða.
Dynjandi er í ánni Dynjandi sem rennur ofan af Dynjandisheiði. Hún á upptök sín í nokkrum vötnum á heiðinni sem liggur í jaðri hálendissvæðis Glámu. Glámusvæðið einkennist af jökulruðningum og dældum sem smávötn hafa safnast í.
Dynjandi fellur niður u.þ.b. 100 metra hátt og bungumyndað berg. Fossastiginn hefur orðið til vegna lagskiptingar bergsins í hraunlög og lausari millilög. Fossberarnir eru hraunlögin en millilögin hefur áin grópað undan þeim. Fossarnir í Dynjanda eru sex. Efst er Fjallfoss, þá Hundafoss, Strokkur, Göngumannafoss, Hrísvaðsfoss og Sjóarfoss. Tjaldsvæði, bílastæði og salerni eru neðan við fossana.
Fuglalíf
OpnaGaldrar
OpnaHornstrandir
OpnaHornstrandafriðland nær yfir nyrsta hluta Vestfjarðakjálkans. Auk hinna eiginlegu Hornstranda nær friðlandið yfir Aðalvík og norðurhluta Jökulfjarða.
Á Hornströndum er stórbrotin og einstök náttúrufegurð. Meðfram ströndinni eru snarbrött fjöll og inn í flau ganga firðir, víkur og dalir. Land er mótað af ágangi sjávar og jöklum ísaldar sem hafa skilið eftir ófáar hvilftir og skörð. Jarðsöguna má lesa úr landslagi og eru víða menjar um gróðurfar og veðurfar fyrir milljónum ára. Gróðurfar er einstakt. Gróður hefur aðlagast aðstæðum á svæðinu, stuttum og björtum sumrum og snjóflungum vetrum, og er furðu gróskumikill. Þá hefur landið lengi haft frið fyrir ágangi manna og búfjár. Víða er fallega gróið land í víkum og fjörðum og á síðustu áratugum ber meira á nokkrum tegundum plantna sem áður voru nánast horfnar vegna beitar. Fuglalíf er auðugt á svæðinu enda fæðuskilyrði góð í hafinu og enginn hörgull á hentugum varpstöðvum. Á sumrin er mest um fugla sem halda til á sjó og eingöngu setjast upp til að verpa. Einnig verpir fjöldi fugla, vatnaog votlendisfugla af ýmsum tegundum með ströndinni. Meðal fuglabyggða eru tvö af stærstu fuglabjörgum landsins. Í Hælavíkurbjargi er talin vera mest svartfuglabyggð á landinu og hvergi er meira um langvíu en í Hornbjargi.
Refir eiga hér griðland. Heimskautarefir lifa allt umhverfis norðurhvel jarðar og eru einstaklega vel aðlagaðir veðráttu og fimbulkulda á norðurslóðum. þeir munu hafa verið einu villtu landspendýrin á Íslandi við landnám og hafa líklega borist til landsins á ísöld flegar jökulhvel ísaldar tengdi saman lönd á norðurhjara. þá má gera ráð fyrir að refir hafi alla tíð síðan borist öðru hverju með hafís til landsins. Á Hornströndum má hvarvetna rekast á refi enda hafa fleir nóg að bíta og brenna. Í friðlandinu virðist fleim ekki standa mikil ógn af mönnum og eru reyndar orðnir talsvert mannvanir sumir hverjir. Áður var hér allnokkur byggð og fleir sem áttu allt sitt undir náttúrunni nýttu hlunnindi sem hún gaf eins og framast var kostur. Byggð lagðist af fyrir u.fl.b. hálfri öld og víða er að finna menjar um horfna búsetu og lífsbaráttu genginna kynslóða. Hvarvetna blasir fortíðin við og gamlar frásagnir koma upp í hugann nánast við fótmál hvert. Hornstrandir eru paradís náttúruunnenda og landið sveipað ævintýraljóma í vitund ferðalanga. Hornstrandafriðland hefur sérstöðu að því leyti að það er ekki í vegasambandi við umheiminn og eingöngu fært flangað sjóleiðina eða á tveimur jafnfljótum. Um svæðið liggur fjöldi gönguleiða við allra hæfi. Reglubundnum ferðum er nú haldið uppi að sumrinu. Á sumrin er einnig rekin gisting og greiðasala á nokkrum stöðum í friðlandinu. Samfara aukinni umferð hafa verið settar reglur um umgengni í Hornstrandafriðlandi sem ferðafólki ber að kynna sér. Svæðið er í Ísafjarðarbæ en í umsjón Umhverfisnefndar ríkisins og sýslumannsins á Ísafirði.


















