- Afþreying og staðir
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share
Hótel Ísafjörður Hótel Ísafjörður Hótel Ísafjörður

Hótel Ísafjörður

Opna
Staðsetning: Hótel Ísafjörður er þriggja stjörnu hótel, staðsett í hjarta Ísafjarðar

Hótel Ísafjörður
Silfurtorgi 2, 400 Ísafjörður
S: 456-4111
info@hotelisafjordur.is
www.hotelisafjordur.is



Hótel Ísafjörður er þriggja stjörnu hótel við Silfurtorg, í hjarta Ísafjarðar. Á hótelinu eru 36 tveggja manna herbergi. Hótelið var nýlega innréttað í léttum, skandinavískum stíl og er frábært útsýni úr öllum herbergjum, annað hvort yfir Silfurtorg eða Pollinn. Jafnframt er á hótelinu ein fullbúin svíta.

Á Hótel Ísafirði er fyrirmyndar fundaraðstaða fyrir 40-50 manns með nýjustu tækni. Matsalur hótelsins rúmar veislur fyrir allt að 100 manns. Veitingahúsið Við Pollinn er á neðstu hæð hótelsins. Þá eru aðrir, stærri fundarsalir í göngufæri frá hótelinu. Starfsfólk hefur áralanga reynslu af skipulagningu ýmis konar funda og ráðstefna og getur hæglega verið innan handar varðandi skipulagningu dagskrár, skoðunarferða og annarrar dægradvalar.

Fleiri staðir í nágreninu
Prenta | Loka
Arnardalur Arnardalur Arnardalur

Arnardalur

Opna
Staðsetning: Arnardalur er í utanverðum Skutulsfirði, í um 10 mínútna fjarlægð frá Ísafirði.

Arnardalur

Heimabæ, Arnardal, 401 Ísafjörður

S: 860-6062

www.arnardalur.is



Arnardalur er í utanverðum Skutulsfirði, í um 10 mínútna fjarlægð frá Ísafirði. Þar hafa fjárhús og hlaða öðlast algjörlega nýtt hlutverk eftir miklar endurbætur. Fjárhúsið hefur verið klætt og innréttað og er nú hægt að halda þar fundi, ráðstefnur, móttökur og veislur fyrir allt að 70 manns. Internettenging, skjávarpi og hljóðkerfi eru í boði í þessu nýtísku fjárhúsi svo fundargesti ætti ekki að vanhaga um neitt. Hægt er að kaupa ýmis konar veitingar fyrir hópa.

Djúpur dalur liggur inn af Heimabæ en í göngufæri til austurs er Arnarnes þar sem í boði er magnað útsýni yfir Ísafjarðardjúp og blóðrautt sólarlag sem óvíða þykir fegurra en á nesinu.

Hægt er að panta skemmtilega afþreyingu og sjá húsráðendur um að skipuleggja ratleiki og/eða aðra samkvæmisleiki ef svo ber undir.

Fleiri staðir í nágreninu
Prenta | Loka
Edinborgarhúsið

Edinborgarhúsið

Opna
Staðsetning: Er staðsett í miðbæ Ísafjarðar, með þrjá fundarsali ásamt veitingar- og kaffihúsi.

Edinborgarhúsið

Aðalstræti 7, 400 Ísafjörður

S: 456-5444

www.edinborg.is



Edinborgarhúsið er fornfrægt verslunar- og fiskvinnsluhús, bárujárnsklætt og stendur við miðbæ Ísafjarðar. Húsið er alls um 1.700 fermetrar á þremur hæðum, reist árið 1907 af miklum stórhug og bar þá höfuð og herðar yfir önnur mannanna verk á norðanverðum Vestfjörðum. Edinborgarhúsið var tekið í gegn frá grunni fyrir nokkrum árum og þar innréttuð alhliða menningarmiðstöð. Reglulega eru þar sett upp leikrit og tónleikar og aðrir listviðburðir.

Þrír salir eru í húsinu sem allir henta prýðisvel undir ráðstefnu- og fundahald. Á fyrstu hæð er Rögnvaldarsalur sem tekur um 80 manns í sæti. Á jarðhæð er Bryggjusalur sem tekur um 120 manns og Edinborgarsalur um 200 manns. Opna má á milli tveggja síðastnefndu salanna. Hljóðkerfi, skjávarpi og Internet standa til boða í öllum þremur sölunum. Í húsinu er einnig veitingastaður sem tekur um 100 manns í sæti.

Fleiri staðir í nágreninu
Prenta | Loka
Einarshúsið Einarshúsið Einarshúsið

Einarshúsið

Opna
Staðsetning: Veitingar- og kaffihús í Bolungarvík með fundaraðstaðu fyrir 40 til 50 manns

Einarshúsið

Hafnargötu 41, 415 Bolungarvík

S: 456-7901, 864-7901

www.einarshusid.is



Í þessu merka húsi bjuggu tveir mestu athafnamenn Bolungarvíkur á 20. öldinni, þeir Pétur Oddsson og Einar Guðfinnsson. Húsið er tvílyft timburhús á steinsteypukjallara, byggt árið 1904 og var á sínum tíma með stærstu og reisulegustu íbúðarhúsum landsins.

Húsið var í niðurníðslu þegar núverandi eigendur tóku við því fyrir fimm árum en það hefur nú verið endurbyggt í sinni upprunalegu mynd og þykir hin mesta bæjarprýði í dag.

Í húsinu er fundaraðstaða fyrir 40 til 50 manns. Þar er í boði öll nútíma aðstaða; Internet, skjávarpi og hljóðkerfi. Veitingastaður er á fyrstu hæð hússins þar sem áhersla er lögð á ferska sjávarrétti. Í kjallara hússins er síðan staðsett krá þeirra Bolvíkinga sem opin er um helgar og þegar þörf er á.

Fleiri staðir í nágreninu
Prenta | Loka
Gamla Gistihúsið

Gamla Gistihúsið

Opna
Staðsetning: Gamla gistihúsið er 2ja stjörnu gistiheimili á besta stað í miðbæ Ísafjarðar

Gamla Gistihúsið
Mánagötu 5, 400 Ísafjörður
S: 456-4146
gistihus@gistihus.is
www.gistihus.is


Gamla gistihúsið er 2ja stjörnu gistiheimili á besta stað í miðbæ Ísafjarðar. Gistiheimilið er á tveimur hæðum með átta tveggja manna herbergjum og einu þriggja manna og er gistirými fyrir samtals 19 manns. Herbergin eru rúmgóð og björt og öll með vaski, sjónvarpi og baðslopp og þráðlaus nettenging er í öllu húsinu.

Morgunmatur er framreiddur í notalegum borðsal á neðri hæð en auk þess hafa gestir aðgang að eldunaraðstöðu allan sólarhringinn, en morgunmaturinn skipar samt alltaf heiðurssess. Í bland við hefðbundinn morgunmat eins og morgunkorn, kaffi og súrmjólk er kostur úr héraði. Þannig er brauðið nýbakað úr Gamla Bakaríinu og sulturnar allar úr nálægum dölum og skriðum.

Fleiri staðir í nágreninu
Prenta | Loka
Hótel Núpur Hótel Núpur

Hótel Núpur

Opna
Staðsetning: Hótel og veitingastaður í Dýrafirði. Matsalur tekur 250 manna ráðstefnu.

Hótel Núpur

Núpi, Dýrafirði, 471 Þingeyri

S: 456-8235

www.hotelnupur.is



Hótel Núpur er í fyrrum héraðsskóla að Núpi í Dýrafirði, umvafinn tignarlegum fjöllum með ólýsanlegu útsýni yfir fegurstu tinda Vestfjarða og sægrænan Dýrafjörðinn. Steinsnar frá hótelinu eru margar af perlum Vestfjarða, eins og til dæmis Skrúður, elsti skrúðgarður landsins sem aðrir slíkir garðar draga nafn sitt af. Dynjandi í Arnarfirði og fjallið Kaldbakur eru aðrir staðir sem vert er að heimsækja.

Á Núpi þurfa menn ekki að sitja eins og síld í tunnu, þar er vítt til veggja og stórir salir. Matsalur ræður við um 250 manna ráðstefnu, íþróttasalur tekur um 300 í sæti og þar að auki eru fimm stofur sem hver um sig rúma milli 30 og 50 manns. Boðið er upp á skjávarpa, Internet og hljóðkerfi. Þá er gistirými fyrir um 90 manns í uppábúnum rúmum auk þess sem svefnpokagisting er í boði fyrir hópa.

Fleiri staðir í nágreninu
Prenta | Loka
Thai Koon

Thai Koon

Opna
Staðsetning: Tælenskur veitingastaður í miðbæ Ísafjarðar

Thai Koon

Hafnarstræti 9-13, 400 Ísafjörður

S: 456-0123



Veitingastaðurinn Thai Koon var opnaður í verslunarmiðstöðinni Neista í miðbæ Ísafjarðar árið 2002. Eins og nafnið gefur til kynna sérhæfir staðurinn sig í tælenskri matargerð og hefur hann öðlast fastan sess hjá mörgum Ísfirðingum og þeim gestum sem hafa heimsótt bæinn.

Matsalurinn tekur um það bil 25 manns í sæti en þar að auki er boðið upp á veisluþjónustu fyrir fleiri hundruð manns ef því er að skipta. Tælenskir smáréttir henta einkar vel í kokteilboð og móttökur, en þar að auki hefur veisluhlaðborð Thai Koon vakið lukku hvert sem það hefur farið.

Fleiri staðir í nágreninu
Prenta | Loka
Við Pollinn

Við Pollinn

Opna
Staðsetning: Hótel Ísafjörður, jarðhæð

Við Pollinn
Silfurtorgi 2, 400 Ísafjörður
S: 456-3360
www.vidpollinn.is
vidpollinn@vidpollinn.is


Veitingastaðurinn Við Pollinn er á jarðhæð Hótels Ísafjarðar. Staðurinn stendur vissulega undir nafni og njóta matargestir fallegs útsýnis yfir Pollinn og inn Skutulsfjörðinn. Veitingastaðurinn og veisluþjónustan Strákarnir er starfrækt af tveimur ungum kokkum, þeim Halldóri Karli Valssyni og Eríki Gísla Johanssyni. Notast er við úrvals hráefni og leitast við að bjóða upp á ferskan mat úr nánasta nágrenni, fisk og kjötrétti og ljúffengar kökur sem útbúnar eru á staðnum.

Veitingasalur tekur um 100 manns við borð. Þar er einnig vel útbúin fundaraðstaða fyrir ríflega 50 manns með skjávarpa, hljóðkerfi og interneti.

Veisluþjónusta Strákanna hentar vel fyrir kokteilboð, matarveislur og fleira, hvort sem notast er við veislusal fyrirtækisins eða annað húsnæði í nágrenninu.

Fleiri staðir í nágreninu
Prenta | Loka
Ævintýradalurinn Heydalur Ævintýradalurinn Heydalur Ævintýradalurinn Heydalur

Ævintýradalurinn Heydalur

Opna
Staðsetning: Vinalegt sveitahótel með veitingahúsi og sal fyrir allt að 40 manns

Heydalur
Heydal, Mjóafirði, 420 Súðavík
S: 456-4824
heydalur@heydalur.is
www.heydalur.is



Sveitahótelið Heydalur er í 135 km fjarlægð frá Ísafirði og 320 – 360 km fjarlægð frá Reykjavík eftir því hvaða leið er valin. Veitingasalur rúmar vel 100 manns og heppileg fundaraðstaða er fyrir 10 – 40 manns. Boðið er upp á gistingu fyrir 20 – 30 manns í átta, tveggja manna herbergjum og einu þriggja manna herbergi með sér baðherbergjum og fimm tveggja manna herbergjum í sumarbústað.Gott tjaldstæði. Náttúrulaug vígð af Gvendi góða.

Gnægð afþreyingar er í boði. Kajak- og hestaleiga og veiði í vötnum á sumrin og á veturna vélsleðaferðir og ágætis gönguskíðaleiðir. Falleg gönguleið er inn dalinn sem eitt sinn rúmaði 13 bæi. Ríkt fuglalíf og fugla- og plöntuspjöld eru til fróðleiks. Húsráðendur eru sveigjanlegir og reyna að mæta þörfum sinna gesta.

Fleiri staðir í nágreninu
Prenta | Loka
Get Adobe Flash player