- Afþreying og staðir
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share
Vesturferðir - Ferðaskrifstofa Vesturferðir - Ferðaskrifstofa Vesturferðir - Ferðaskrifstofa

Vesturferðir - Ferðaskrifstofa

Opna
Staðsetning: Ferðaskrifstofa á Ísafirði sem hefur mikla reynslu af skipulagningu og framkvæmd funda og ráðstefna

Vesturferðir

Aðalstræti 7, 400 Ísafjörður

S: 456-5111

www.vesturferdir.is

Vesturferðir er vestfirsk ferðaskrifstofa sem starfar allt árið og hefur að skipa starfsfólki með mikla reynslu af skipulagningu og framkvæmd hvers konar funda og ráðstefna, eins og að útvega fundaraðstöðu og gistingu, skipuleggja ferðir fyrir fundargesti, veitingar og ýmiskonar afþreyingu.Mikilvægt er að samræma öll þau fjölmörgu atriði sem snúa að undirbúningi funda og ráðstefna þannig að framkvæmdin verði eins hnökralaus og kostur er. Þar hafa Vesturferðir reynsluna og þekkinguna sem til þarf.

Vesturferðir sérhæfa sig einnig í dægradvöl fyrir maka ráðstefnugesta og eru möguleikar á margvíslegum ferðum og uppákomum á svæðinu sem gera dölina ánægjulega og eftirminnilega.

Fleiri staðir í nágreninu
Prenta | Loka
Blossi – Sjóstöng í Önundarfirði Blossi – Sjóstöng í Önundarfirði Blossi – Sjóstöng í Önundarfirði

Blossi – Sjóstöng í Önundarfirði

Opna
Staðsetning: Sigling og sjóstöng um Önundarfjörð

Blossi – Sjóstöng í Önundarfirði

Drafnargata 6, 425 Flateyri

S: 456-7671

www.blossi.net



Frá miðjum júní fram í september er hægt að fara í siglingu um Önundarfjörð á bátnum Blossa Ís. Á siglingu um Önundarfjörð eru það ekki einungis hrikaleg hamrabeltin í hinum háa fjallasal og litadýrð sem heilla, heldur einnig fjölskrúðugt fuglalíf. Fyrst og fremst um að ræða íslenska sjófugla og eru allar nánari upplýsingar um þá að finna um borð í Blossa. Seli er að finna á þessum slóðum og hvali kann jafnvel að bera fyrir augu - þótt engu sé lofað!

Um borð er allur búnaður til veiða, einungis þarf að taka með sér hlífðarfatnað.

Ferð á sjóstöng tekur 1 til 3 tíma.

Fleiri staðir í nágreninu
Prenta | Loka
Borea Adventures - skútusiglingar og þemaferðir Borea Adventures - skútusiglingar og þemaferðir Borea Adventures - skútusiglingar og þemaferðir

Borea Adventures - skútusiglingar og þemaferðir

Opna
Staðsetning: Borea Adventures - skútusiglingar og þemaferðir
Borea Adventures / Skútusiglingar ehf
Hlíðarvegur 38, 400 Ísafjörður
S.8993817
info@boreaadventures.com
www.boreaadventures.com


Borea Adventures er ævintýrafyrirtæki á Ísafirði sem býður upp á ævintýraferðir með leiðsögn fyrir minni og stærri hópa.

Fyrirtækið á og rekur Auroru, stærstu seglskútu Íslands sem hefur öll þægindi fyrir allt að 10 manna hópa sem gefst tækifæri á að sigla um norðanverða Vestfirði frá mars til lok september. Hægt er að fara í dagsferðir eða gista um borð í eina eða fleiri nætur, fara í gönguferðir, skoða dýralífið og fuglabjörgin eða skella sér á kajak innan um forvitna seli og fugla.

Borea Adventures býður auk þess upp á fjölbreytt úrval dagsferða út frá Ísafirði eins og gönguferðir yfir fjöll og firnindi,

2ja-6 tíma kajakferðir um friðsæla firði, gönguferð á Kaldbak, hæsta fjall Vestfjarða og margt fleira. Einnig er hægt að sérsníða ferðir fyrir hópa af ýmsum stærðum.



Borea Adventures býður einungis upp á hressa og reynslumikla leiðsögumenn sem tryggir að allir fari heim með bros á vör.

Fleiri staðir í nágreninu
Prenta | Loka
F&S hópferðabílar

F&S hópferðabílar

Opna
Staðsetning: F & S Hópferdabílum ehf eru með bíla fyrir litla og stóra hópa. Akstur við allra hæfi.

F&S hópferðabílar

Vallargötu 15, 470 Þingeyri

S: 893-1058

www.vidfjordinn.is



F&S hópferðabílar gera út frá Þingeyri en starfsvæði þeirra nær yfir alla Vestfirði og í raun víðar ef því er að skipta. Fyrirtækið hefur yfir að ráða bílum fyrir litla eða stóra hóp. Starfsmenn eru vel staðkunnugir og boðnir og búnir til að leiðbeina ókunnugum um öngstræti Vestfjarða og þá földu leyndardóma sem eru utan alfaraleiðar.

Til að mynda er ferðalag um svokallaðan Svalvogahring, frá Dýrafirði til Arnarfjarða og til baka, upplifun sem enginn getur gleymt. Fjölmargar aðrar áhugaverðar akstursleiðir eru í boði í nágrenninu og er sjálfsagt að hafa samband og fá nánari útlistanir.

Fleiri staðir í nágreninu
Prenta | Loka
Kómedíuleikhúsið Kómedíuleikhúsið Kómedíuleikhúsið

Kómedíuleikhúsið

Opna
Staðsetning: Kómedíuleikhúsið á í fórum sínum fjölbreytt skemmtiatriði fyrir fólk á aldrinum 1 – 102 ára

Kómedíuleikhúsið

Túngötu 17, 400 Ísafirði

S: 891-7025

www.komedia.is



Kómedíuleikhúsið er fyrsta og eina atvinnuleikhúsið á Vestfjörðum. Uppsetningar leikhússins á verkum eins og Gísla Súrssyni og Dimmalimm hafa vakið gríðarlega lukku um alla Vestfirði og í raun miklu víðar. Gísli Súrsson hefur ferðast víða um land, verið sýndur um 200 sinnum og hlotið verðlaun á alþjóðlegum leiklistarhátíðum í Þýskalandi og í Albaníu. Leikhúsið sér árlega um stjórn einleikjahátíðarinnar Act alone sem haldin er á Ísafirði þar sem aðgangur er ókeypis. Þá hefur leikhúsið gefið út fimm hljóðbækur þar sem fluttar eru þjóðsögur víðsvegar að af Vestfjörðum.

Kómedíuleikhúsið á í fórum sínum fjölbreytt skemmtiatriði fyrir fólk á aldrinum 1 – 102 ára og er því tilvalin kostur fyrir þá sem vilja bjóða upp á veglega skemmtun í sínum ferðum.

Fleiri staðir í nágreninu
Prenta | Loka
Víkingasvæðið Þingeyri

Víkingasvæðið Þingeyri

Opna
Staðsetning: Úti víkingasvæði á Þingeyri með skemmtilega möguleika á fræðslu og fundarhöldum.

Víkingasvæðið Þingeyri

S: 863-2412

thorir@simnet.is

Gísla saga Súrssonar spannar stórt svæði af fjörðunum og þar er sögustöðunum lýst af kunnáttu og nákvæmni. Allt fram á 20. öldina voru atvinnuhættir á þessum slóðum hinir sömu og voru á dögum Gísla Súrssonar. Þegar svo tækni nútímans hóf innreið sína á Vestfirði, voru sumir staðir þegar komnir í eyði. Þess vegna líta ýmsir sögustaðanna nánast eins út og þeir gerðu á meðan Gísli Súrsson gekk þar um.

Vegna hinnar ósnortnu náttúru sem þú getur svo víða notið á Vestfjörðum, hefur þú tækifæri til að komast í snertingu við söguþrungna fortíð svæðisins. Á Þingeyri er búið að byggja upp Víkingasvæði með útivistarsvæði sem saman stendur af sviði, bekkjum og borðum og grillaðstöðu og er aðstaðan mynduð úr hringhleðslu úr grjóti. Þá er tilvalið að fara með hópinn í siglingu með Víkingaskipinu Vésteini.

Fleiri staðir í nágreninu
Prenta | Loka
Yogaljósið Yogaljósið

Yogaljósið

Opna
Staðsetning: Yogaljósið er yoga-og meðferðarmiðstöð á Ísafirði

Í hjarta Ísafjarðar er til húsa yoga-og meðferðarmiðstöð sem heitir Ljósið Þitt. Ljósið þitt var stofnað í september 2008 en á bak við fyrirtækið standa aðilar með mjög mikla reynslu í yoga, hómópatíu og höfuðbeina-og spjaldhryggsmeðferð. Þar er boðið upp á opna yogatíma, pilates og detox helgarnámskeið svo e-ð sé nefnt en einnig er í boði instaklingsmeðferðir í hómópatíu og höfuðbeina-og spjaldhryggsmeðferð. Þá hefur Yogaljósið staðið fyrir útiyoga í stórkostlegri náttúru Ísafjarðar.

Það er tilvalið fyrir maka ráðstefnugesta að skella sér í Ljósyoga en ekki síður mikilvægt fyrir funda og ráðstefnugestina sjálfa að gefa sér tíma til að hlaða orku sem veitir þann innblástur og orku sem þarf til þess að gera fundinn sem árangusríkastan.

 

Fleiri staðir í nágreninu
Prenta | Loka
Get Adobe Flash player