- Afþreying og staðir
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Saga og menning



Vestfirðingar eru stoltir af uppruna sínum, sögu og menningu. Hvarvetna um fjórðunginn er að finna söfn sem miðla horfnum tímum til kynslóða dagsins í dag. Hér fyrir neðan er yfirlit yfir vestfirsku söfnin.

Galdrasafnið á Hólmavík Galdrasafnið á Hólmavík Galdrasafnið á Hólmavík

Galdrasafnið á Hólmavík

Opna
Staðsetning: Hólmavík

Galdrasafnið opnaði árið 2000 á Hólmavík og hefur síðan verið mjög vinsæll viðkomustaður meðal ferðafólks, enda er sýningin mjög vel heppnuð og mikið til hennar vandað. Á sýningunni er fjallað um íslensk galdramál og þjóðtrú tengdri viðfangsefninu. Þar kynnast gestir sérstökum galdramálum og fólkinu sem kom við sögu. Einnig er m.a. hægt að kynna sér hvernig vekja skal upp drauga eða kveða þá niður, koma sér upp nábrókum og gera sig ósýnilegan. Hverskyns lifandi uppákomur eru einnig á Galdrasafninu á Hólmavík.
 
Staðsetning: Hólmavík
Sími: 451-3525
galdrasyning@holmavik.is
www.galdrasyning.is

Opnunartími: Árið um kring.
Sumaropnun:
1. júní- 15. september kl. 10:00-18:00
1. júlí - 15 ágúst kl. 10:00 -18:00
16. ágúst - 31. ágúst kl. 12:00 -18:00

 

Fleiri staðir í nágreninu Sauðfjársetur á StröndumGaldrarPottarnir á Drangsnesi
Prenta | Loka
Ósvör Ósvör Ósvör

Ósvör

Opna
Staðsetning: Bolungarvík

Safnið samanstendur af tvöfaldri 19. aldar verbúð, salthúsi, fiskreit og þurrkhjalli. Á meðal sýningagripa er áraskipið Ölver sem gefur góða mynd af þeim skipum sem notuð voru til fiskveiða fyrr á öldum. Safnið gefur raunhæfa mynd af aðbúnaði vertíðarfólks  og þeim búnaði sem notaður var til fiskvinnslu á vetrarvertíð á 19. öld. Safnvörðurinn tekur á móti gestum, íklæddur skinnklæðum, samskonar þeim sem notuð voru við sjósókn í Bolungarvík og lýsir því sem fyrir augu ber. Safnið stendur við Óshlíðaveg austast í víkinni.

Sími :  892-5744, 892-1616, 456-7505.
osvor@nave.is
www.osvor.is
Opnunartími:
15. maí – 14. júní: 10-17.
15 júní – 30 ágúst: 9-18.
1. September -  30 september 10 – 15.
Aðra tíma ársins eftir samkomulagi.


 

Fleiri staðir í nágreninu Bolafjall og SkálavíkSjóminjasafnið - Byggðasafn Vestfjarða Gamla sjúkrahúsið - Safnahúsið Eyrartúni
Prenta | Loka
Sjóminjasafnið - Byggðasafn Vestfjarða Sjóminjasafnið - Byggðasafn Vestfjarða Sjóminjasafnið - Byggðasafn Vestfjarða

Sjóminjasafnið - Byggðasafn Vestfjarða

Opna
Staðsetning: Ísafjörður

Byggðasafn Vestfjarða er staðsett í Turnhúsinu í Neðstakaupstað á Ísafirði þar sem er elsta húsaþyrping landsins. Þar eru til sýnis sjóminjar Byggðasafnsins, og þar má sjá ýmislegt sem tengist sjávarútvegi fyrr og síðar, auk þess er þar til sýnis hluti af harmonikusafni Ásgeirs S. Sigurðssonar.
Sólþurrkaður saltfiskur hefur verið aðalsmerki Byggðasafnsins um árabil, og er þessi gamla verkunaraðferð enn í heiðri höfð á safninu. Á hverju sumri er þurrkað allmikið magn af saltfiski á fiskreitum safnsins, og á góðum og sólbjörtum dögum getur fólk séð hvernig verkunin og breiðsla á fiskinum fer fram.

Vélbáturinn Gestur frá Vigur sem er í eigu safnsins og smíðaður er 1906, er notaður til siglinga með gesti safnsins um Pollinn á Ísafirði.
 
Eftir safnheimsóknina er tilvalið er að tylla sér niður í Tjöruhúsinu yfir kaffisopa og njóta veðurblíðunnar, því andrúmsloftið í Neðstakaupstað er ákaflega afslappað og endurnærir sál og líkama þreyttra ferðalanga.

Staðsetning – Turnhúsinu í Neðstakaupstað á Ísafirði
Sími: 456-3293, 456-3299
Gsm: 896-3291
byggdasafn@isafjordur.is
www.nedsti.is

Opnunartími:
Virka daga
júní kl. 10 - 17
júlí –ágúst kl. 10 - 18

Um helgar:
Júní kl. 13 - 17
júlí - ágúst kl. 10 - 17

Utan hefðbundins sumaropnunartíma er opið eftir samkomulagi .

Aðgangseyrir:

Fullorðnir 500
Eldri borgarar 300
Frítt fyrir börn á grunnskólaaldri.

Sigling með vélbátnum Gesti:
Fullorðnir 1000
Ókeypis fyrir börn

Fleiri staðir í nágreninu ÖnundarfjörðurNaustahilftTungudalurArnarnesÓsvörNáttúrugripasafn BolungarvíkurAlþjóðlega brúðusafniðGamla sjúkrahúsið - Safnahúsið Eyrartúni
Prenta | Loka
Gamla sjúkrahúsið - Safnahúsið Eyrartúni Gamla sjúkrahúsið - Safnahúsið Eyrartúni

Gamla sjúkrahúsið - Safnahúsið Eyrartúni

Opna
Staðsetning: Ísafjörður
Í húsinu eru Bæjar- og hérðasbókasafnið (safnkostur um 120.000 bindi), Héraðsskjalasafn, Listasafn og Ljósmyndasafn (safnkostur um 140.000 myndir). Söfnin eru opin alla virka daga frá kl. 13 til 19 og á laugard. frá kl. 13 til 16. Í húsinu eru að jafnaði uppi minni sýningar víða um húsið á vegum Skjalasafnsins eða Ljósmyndasafnsins auk stærri sýninga í sal Listasafnsins og dagskrár. Á afgreiðslusvæði bókasafnsins eru 9 nettengdar tövur fyrir almenning auk þess sem internetið er opið (hotspot) á svæðinu. Fyrirspurnum varðandi skjöl og ljósmyndir er sinnt á afgreiðslutíma eða gegnum síma og internetið. Fyrir hópa er hægt að panta heimsóknir eða kynningar í húsinu utan daglegs afgreislutíma. Gott aðgengi er fyrir hreyfihamlaða.
 
Staðsetning: Eyrartún, Ísafirði
http://safn.isafjordur.is 
bokasafn@isafjordur.is, myndasafn@isafjordur.is, skjalasafn@isafjordur.is
Sími: 450-8220 (bókasafn), 450-8224 (myndasafn), 450-8226 (skjalasafn) Fax 450-8229

Húsið er opið virka daga kl. 13-19 og laugard. kl. 13-16 allt árið. Auk þess er símaerindum sinnt kl. 10 - 19 virka daga.
Fleiri staðir í nágreninu TrostansfjörðurNaustahilftTungudalurArnarnesÓsvörNáttúrugripasafn BolungarvíkurSjóminjasafnið - Byggðasafn Vestfjarða
Prenta | Loka
Gamla smiðjan

Gamla smiðjan

Opna
Staðsetning: Þingeyri

Gamla smiðjan á Þingeyri eins og hún er kölluð í dag má rekja til ársins 1906 þegar Guðmundur J. Sigurðsson heim úr vélsmíðanámi frá Danmörku. Frá Danmörku tók Guðmundur með sér ný verkfæri sem nauðsynleg voru til smiðjureksturs. Þann 13 janúar árið 1913 stofnaði Guðmundur ásamt Gramsverslun, Vélsmiðju Guðmundar J. Sigurðssonar & Co. hf. og var einn af frumkvöðlum alhliða smiðjureksturs á Íslandi. Undir stjórn Guðmundar og síðar Matthíasar, sonar hans, átti smiðjan eftir að verða landsþekkt fyrir vandaða og góða þjónustu.

Í dag er lifandi safn í gömlu smiðjunni þar sem hægt era ð fræðast um verkhætti sem tíðkuðust í smiðjunni allt frá stofnun. Samhliða vélsmiðjunni var rekin eldsmiðja í húsnæðinu og er hún enn starfrækt í dag á sama grunni og frá stofnun. Safnið er eintök upplifun og mögnuð skemmtun.

Fleiri staðir í nágreninu ArnarfjörðurDynjandiKaldbakurSvalvogarDýrafjörðurIngjaldssandur
Prenta | Loka
Kotbýli kuklarans Kotbýli kuklarans Kotbýli kuklarans

Kotbýli kuklarans

Opna
Staðsetning: Klúka, Bjarnarfjörður

Á Klúku í Bjarnarfirði er Kotbýli kuklarans, önnur sýning Strandagaldurs um galdramál á Íslandi. Það ætti enginn að láta hjá líða að líta við í Kotbýli kuklarans og kynnast af eigin raun aðstæðum og kjörum almúgafólks á tímum galdrafársins. Þar er auðvelt að gera sér í hugarlund að galdur hafi í raun verið hjálparmeðal sem almúginn gat gripið til og auðveldað þannig lífsbaráttuna. Það er annarskonar upplifun að koma við í Kotbýli kuklarans.
 
Staðsetning: Klúka, Bjarnarfirði
Sími: 451-3524
galdrasyning@holmavik.is
www.galdrasyning.is

Opnunartími:
15. júní - 30. júní kl. 12:00 -18:00
1. júlí - 15 ágúst kl. 10:00 -18:00
16. ágúst - 31. ágúst kl. 12:00 -18:00

Fleiri staðir í nágreninu BjarnarfjörðurDjúpavík, sögusýningMinja- og handverkshúsið KörtGaldrarPottarnir á Drangsnesi
Prenta | Loka
Minjasafn Jóns Sigurðssonar

Minjasafn Jóns Sigurðssonar

Opna
Staðsetning: Hrafnseyri, Arnarfirði

Á Hrafnseyri við Arnarfjörð er fæðingarstaður Jóns Sigurðssonar forseta. Þar er starfrækt safn sem helgað er minningu hans og má þar m.a. sjá margar myndir úr lífi og starfi Jóns og eiginkonu hans, Ingibjargar Einarsdóttur.  Fæðingarbær Jóns Sigurðssonar hefur einnig verið endurgerður og er hluti af safninu, sem og minningarkapella hans. Þá er gamla kirkjan á Hrafnseyri ávallt opin gestum. Mjög gott aðgengi er fyrir hreyfihamlaða á staðnum.
Í hinum endurgerða burstabæ er hægt að kaupa veitingar allt sumarið, súpu, brauð, kaffi og heimabakað meðlæti. Til að auðvelda afgreiðslu eru hópar beðnir að panta með fyrirvara.

Opnunartími:
Alla daga, 1. júní – 1. sept.
kl. 10:00-20:00.

Aðgangseyrir:
400 kr.   Fullorðnir,
200 kr   Ellilífeyrisþegar 
Ókeypis fyrir börn og unglinga 15 ára og yngri

Viðamikil safnskrá á íslensku er seld á 200 kr. en í
henni eru skýringar við allar myndir og gripi í safninu.

Safnvörður: 456-8260 og 845-5518
Burstabær:  896-8107
hrafnseyri@hrafnseyri.is
www.hrafnseyri.is


 

Fleiri staðir í nágreninu ArnarfjörðurKetildalir og SelárdalurDynjandiKaldbakurSvalvogar
Prenta | Loka
Minjasafnið á Hnjóti

Minjasafnið á Hnjóti

Opna
Staðsetning: Hnjótur, Örlygshöfn
Minjasafn Egils Ólafssonar Hnjóti var opnað 22. júní 1983 og er það sjálfseignarstofnun í eigu Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps. Í safninu er margt merkra muna sem hvergi eru annars staðar til á landinu. Þar eru atvinnusögu þjóðarinnar gerð góð skil sem og menningu sunnanverðra Vestfjarða, svo sem nytjum á Látrabjargi, hvalstöð á Suðureyri við Tálknafjörð og umsvifum Péturs Thorsteinssonar á Bíldudal. Ennfremur gefur að líta gripi úr eigu Gísla á Uppsölum og muni sem tengjast björgunarafrekinu við Látrabjarg. Á Hnjóti er einnig Flugminjasafn með merkum gripum úr flugsögu landsins. Það ætti enginn sem kemur á sunnanverða Vestfirði að láta safnið á Hnjóti fram hjá sér fara. Þar er rekin kaffitería með heimilislegum brag.

Sími: 456 1511
museum@hnjotur.is
www.hnjotur.is
Opnunartími: 25. maí til 15. september alla daga frá kl. 10 til 18.
Á öðrum tíma eftir samkomulagi í síma: 456 1569 og 896 5363.
Fleiri staðir í nágreninu LátrabjargRauðasandurLátravík (Látrabjarg)BreiðavíkKollsvíkHænuvíkÖrlygshöfn
Prenta | Loka
Náttúrugripasafn Bolungarvíkur

Náttúrugripasafn Bolungarvíkur

Opna
Staðsetning: Bolungarvik

Náttúrugripasafnið var stofnað árið 1998 og er tileinkað Steini Emilssyni náttúrufræðingi og skólastjóra í Bolungarvík. Safngripum er komið fyrir í rúmlega 300m2 sérútbúnum sýningarsal og þar gefur að líta steinasafn Steins ásamt fleiri munum úr hans eigu. Safnið hýsir einnig eitt stærsta safn uppstoppaðra fugla á Íslandi auk villtra land og sjávarspendýra, m.a. uppstoppaðan ísbjörn. Safnið býður til sölu úrval minjagripa og handbóka tengdum náttúru Vestfjarða. Við safnið er hliðarsalur fyrir fyrirlestra og sérsýningar.

Staðsetning: Vitastígur 3, 415 Bolungarvík.
Sími:  456-7507, 456-7005. 
nagr@nave.is,  
www.natturugripasafn.is
Opnunartími: 9 – 12 og 13-17.
Helgaropnun:15. júní – 30 ágúst : 13 -17 og  eftir samkomulagi.

 

Fleiri staðir í nágreninu Bolafjall og SkálavíkSjóminjasafnið - Byggðasafn Vestfjarða Gamla sjúkrahúsið - Safnahúsið Eyrartúni
Prenta | Loka
Bátasafn Breiðafjarðar

Bátasafn Breiðafjarðar

Opna
Staðsetning: Reykhólar

Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum hefur á síðustu árum dregið saman á þriðja tug gamalla báta úr Breiðafjarðareyjum og héruðum í kring og bjargað flestum þeirra frá eyðileggingu. Sumir eru varðveittir í misjöfnu ásigkomulagi eftir tímans tönn, gert er við aðra og enn aðrir eru endurbyggðir. Þetta starf er í fullum gangi og þess vegna er safnið lifandi vinnustaður ekki síður en sýningarstaður. Drifkraftur safnsins er breiðfirski skipasmiðurinn Aðalsteinn Valdimarsson, roskinn maður sem er þar við vinnu sína flesta daga. Þá er hægt að líta inn þó að safnið sé ekki opið samkvæmt klukku. Bátasafnið er í sama húsi og Upplýsingamiðstöð ferðafólks og Hlunnindasýningin á Reykhólum. Vegna þrengsla eru allmargir bátanna þó geymdir annars staðar.

Sími:  434 7830
hlunnindi@reykholar.is
www.reykholar.is/batasafn
Opið eftir samkomulagi. Fleiri staðir í nágreninu VaðalfjöllBreiðafjörðurHlunnindasýning á ReykhólumFuglalíf
Prenta | Loka
Hlunnindasýning á Reykhólum Hlunnindasýning á Reykhólum

Hlunnindasýning á Reykhólum

Opna
Staðsetning: Reykhólar

Hlunnindasýningin er helguð gjöfum náttúrunnar við Breiðafjörð og nýtingu þeirra, einkum á fyrri tíð. Fuglarnir gáfu egg og kjöt í matinn og verðmætan dún í sængur og kodda. Selurinn gaf kjöt og spik og skinnið var notað til klæðagerðar. Á sýningunni má kynnast veiðum á sel og fugli og hirðingu eggja og dúns og meðhöndlun þessara nytja eins og tíðkaðist um aldir og jafnvel fram á okkar daga. Breiðafjörðurinn og héruðin í kring hafa þá sérstöðu, að jafnvel í mestu hallærum og harðindum hérlendis varð þar aldrei bjargarskortur, svo er fjölbreyttum hlunnindum fyrir að þakka. Á sýningunni getur að líta ýmsa þá fugla sem gáfu björg í bú, auk andstæðunnar, hafarnarins volduga. Sýningin er staðsett í sama húsi og upplýsingamiðstöð ferðafólks við afleggjaran niður að þorpinu Á Reykhólum

Sími: 434 7830
hlunnindi@reykholar.is
www.reykholar.is/hlunnindi
Opið 11-18 frá 20. júní til 10. ágúst, eða eftir samkomulagi.
Aðgangseyrir kr. 500 nema fyrir börn og aldraða.

 

Fleiri staðir í nágreninu VaðalfjöllBreiðafjörðurFlateySkáleyjarBátasafn Breiðafjarðar
Prenta | Loka
Listasafn Samúels í Selárdal Listasafn Samúels í Selárdal Listasafn Samúels í Selárdal

Listasafn Samúels í Selárdal

Opna
Staðsetning: Selárdalur, Arnarfjörður

Félag um endurreisn listasafns Samúels Jónssonar í Selárdal var stofnað þann 4. apríl 1998. Tilgangur félagsins er að stuðla að endurreisn og viðhaldi á listaverkum og byggingum Samúels Jónssonar (1884-1969) í Selárdal við Arnarfjörð og kynna verk Samúels innan lands sem utan. Félagið hóf viðgerðir á listaverkum Samúels árið 2004,.en Gerhard König myndhöggvari tók að sér verkstjórn og hefur hann unnið að viðgerðum í Selárdal s.l. sumur í umboði félagsins.

Sumarið 2005 gerði Gerhard við styttur Samúels og kom ljónagosbrunninum í gagn. 2006 og 2007 unnu ungmenni frá Þýskalandi undir stjórn Gerhards að vinna að viðgerðum á Listasafnshúsi Samúels. Nú er verið að hanna íbúð og vinnuaðstöðu fyrir lista- og fræðimenn ásamt lítilli sölubúð í endurgerð íbúðarhúss Samúels. Sumarið 2008 lauk hópur frá Þýskalandi viðgerðum ásamt hópi alþjóðlegra sjálfboðaliða frá Seeds-samtökunum.

Sími: 896-8520 (Ólafur Hannibalsson)
olafur@sogumidlun.is (Ólafur Engilbertsson)
www.sogumidlun.is/index.php?m=&id=M_SAMUEL

Fleiri staðir í nágreninu ArnarfjörðurKetildalir og SelárdalurMelódíur minningannaReykjarfjörður í Arnarfirði
Prenta | Loka
Litlibær

Litlibær

Opna
Staðsetning: Skötufjörður, Ísafjarðardjúp

Litlibær í Skötufirði var upphaflega byggður árið 1894, og hann var í ábúð allt til ársins 1969. Um 20 manns bjuggu í bænum á tímabili, en eftir 1917 bjó aðeins ein fjölskylda þar.

Túnið er afmarkað af þykkum steinhlöðnum garði og mælist það um 3 hektarar. Einstaklega vel hefur verið vandað til allra steinhleðslna. Ábúendur á Litlabæ höfðu lifibrauð sitt af sjávarnytjum ekki síður en landbúnaði, og þaðan var stundað heimræði.

Meðal tófta sem eru á Litlabæ, er hringlaga fjárborg sem stendur við veginn, og er hún talin vera mun eldri en aðrar hleðslur við Litlabæ.

Árið 1999 komst Litlibær í vörslu Þjóðminjasafnsins. Ráðist var í miklar endurbætur á íbúðarhúsinu, innan dyra sem utan, sem nú styttist í að ljúki.

Oft má sjá mikið af sel í fjörunni fyrir utan Litlabæ.

Staðsetning – Skötufjörður í Ísafjarðardjúpi
Sími: Hvítanes 456-4809, 894-4809

Opnunartími:
Samkvæmt samkomulagi við bóndann á Hvítanesi.

Aðgangseyrir:
Frjáls framlög.

Fleiri staðir í nágreninu Drangajökull og KaldalónVatnsfjörður í ÍsafjarðardjúpiRaggagarðurHeydalurHörgshlíð
Prenta | Loka
Sauðfjársetur á Ströndum

Sauðfjársetur á Ströndum

Opna
Staðsetning: Í Steingrímsfirði, skammt frá Hólmavík

Sauðfjársetur á Ströndum er skemmtilegt safn fyrir alla fjölskylduna í félagsheimilinu Sævangi rétt sunnan við Hólmavík. Safnið fjallar um sauðfjárbúskap fyrr og nú frá öllum mögulegum hliðum og þar er margt sem kemur á óvart. Í Sauðfjársetrinu er notaleg kaffistofa, glæsileg handverksbúð með einstöku handverki heimamanna, vísindahorn fyrir fræðimennina, barnahorn með fullt af leikföngum fyrir yngstu kynslóðina, eldhressir heimalningar sem eru sólgnir í mjólk úr pela og margt fleira sem gleður unga sem aldna.

Staðsetning: Við Steingrímsfjörð, í nágrenni Hólmavíkur
Sími: 451-3324, 661-2009
saudfjarsetur@strandir.is
www.strandir.is/saudfjarsetur

Opnunartími yfir sumarið: Alla daga frá 10:00-18:00
Opnunartími yfir veturinn: Eftir samkomulagi

Fleiri staðir í nágreninu Galdrasafnið á HólmavíkPottarnir á Drangsnesi
Prenta | Loka

Vatnsfjörður í Ísafjarðardjúpi

Opna
Staðsetning: Ísafjarðardjúp
Fleiri staðir í nágreninu Drangajökull og KaldalónLitlibærHeydalurHörgshlíðNauteyriLaugaland
Prenta | Loka

Alþjóðlega brúðusafnið

Opna
Staðsetning: Flateyri

Langt umfram gildi sitt sem leikfang ber brúðan vitni bæði um liðinn tíma og samtímann. Til hennar er því hægt að leita upplýsinga og fræðslu um leiki, lífnaðarhætti, störf og efnahag fyrri tíma. Þannig eru brúður gjarnan mikilvægir fulltrúar sérstakrar menningar og bera hana með sé til annarra og ólíkra menningarsvæða. Þessar staðreyndir eiga vel heima hinu alþjóðlega samfélagi á Flateyri og Vestfjörðum

Handverkshópurinn Purka sér um Alþjóðlega brúðusafnið á Flateyri. Minjasjóði Önundarfjarðar var fært brúðusafnið að gjöf árið 1999 en það er að uppistöðu einkasafn gefendanna þýsku hjónanna Dr. Sentu Siller og Dr. Norbert Pintsch. Alþjóðlega brúðusafninu hafa á undanförnum árum borist brúðugjafir frá öðrum aðilum – nú síðast 25 brúður frá ísfirska píanóleikaranum Önnu Áslaugu Ragnarsdóttur. Brúðurnar nú orðnar um 200 talsins.

Á safninu er listi yfir brúðurnar ásamt myndum og upplýsingar um upprunastað og gefendur.


Safnið er til húsa að Hafnarstræti 11.
Opið er frá kl. 13:00 til kl. 17:00 yfir sumartímann og eftir samkomulagi

Frjáls framlög.

Nánari upplýsingar: johanna@snerpa.is og gp@snerpa.is
www.flateyri.net

Sími: 456-7676

Fleiri staðir í nágreninu ÖnundarfjörðurSjóminjasafnið - Byggðasafn Vestfjarða Gamla bókabúðin
Prenta | Loka
Djúpavík, sögusýning

Djúpavík, sögusýning

Opna
Staðsetning: Djúpavík
Sögursýning Djúpavíkur var opnuð formlega 7.júlí 2003.  Á sýningunni er síldarævintýrinu á Djúpavík gerð skil í máli og myndum.  Umfjöllun sýningarinnar  nær yfir tvö tímabil;  1915-1919 og svo frá 1935 og fram yfir 1950.

Unnið að stækkun sýningarinnar, sem væntanlega verður hægt að opna á þessu ári.  Í þeim áfanga verður fjallað um einstaklinga sem komu við sögu á þessum tveim skeiðum í sögu Djúpavíkur. Þar hafa komið við sögu síldarspekúlantar og bryggjusmiðir, byggingameistarar og  efnafræðingar, forstjórar og síldarstúlkur, beikjar og bakarar, starfstúlkur í mötuneyti og vörubílstjórar, að ógleymdum sjómönnunum sem veiddu síldina.
Einnig er gestum boðið upp á leiðsöguferð í gegnum síldarverksmiðjuna í tengslum til heimsókn á Sögusýninguna.  Staðsetning: Djúpavík á Ströndum
Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 10:00 – 12:00 og frá kl. 14:00 – 17:00. Leiðsögn hefst alla daga kl. 14:00.

Allar nánari upplýsingar eru gefnar í síma Hótels Djúpavíkur: 451-4037.
Fleiri staðir í nágreninu BjarnarfjörðurKotbýli kuklaransMinja- og handverkshúsið KörtPottarnir á Drangsnesi
Prenta | Loka

Gamla bókabúðin

Opna
Staðsetning: Flateyri

Í sumar verða sýningar á vegum Byggðasafns Vestfjarða og Minjasjóðs Önundarfjarðar í gömlu bókabúðinni Bræðurnir Eyjólfsson að Hafnarstræti 3. Hægt er að skyggnast inn í heimili kaupmannshjónanna, Guðrúnar Arnbjarnardóttur (d. 1980) og Jóns Eyjólfssonar  (d. 1950), en það má telja dæmigert fyrir íslenskt  „menningarheimili“ á fyrri hluta 20. aldar. Veggspjöld með ágripi af sögu hússins og sögu Flateyrar eru í anddyri.
Í gömlu bókabúðinni þar sem innréttingar eru upprunalegar (frá 1908) er lítil fornbókasala  og ættu ferðalangar að koma við og gefa sér tíma til að finna áhugavert lesefni. Bækurnar eru seldar í kílótali og eftir samkomulagi, m.a. í formi skiptibókamarkaðar. Öllum sem hafa styrkt rekstur safnsins með því að gefa gamlar eða notaðar bækur eru færðar bestu þakkir!

Gamla Bókabúðin, Bræðurnir Eyjólfsson á Flateyri
Hafnarstræti 3
Opið er eftir hádegið yfir sumartímann og eftir samkomulagi
Frjáls framlög.
Nánari upplýsingar: Netfang: johanna@snerpa.is og gp@snerpa.is
www.flateyri.net
Sími: 864-2943

Fleiri staðir í nágreninu Alþjóðlega brúðusafnið
Prenta | Loka

Melódíur minninganna

Opna
Staðsetning: Bíldudalur

Það er hætt við að margir þeirra sem leggja leið sína vestur á Bíldudal fái svolítinn fiðring í fæturnar og jafnvel nokkur fiðrildi í magann þegar þeir skoða tónlistarsafnið "Melódíur minningnna". Safnið var formlega opnað á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2000. Á safninu kennir margra grasa og þar er stiklað á stóru í tónlistarsögu landsins.

Safnið er tileinkað mörgu af því dásamlega fólki sem Jón Kr. hefur kynnst í gegnum tónlistina. Nægir hér að nefna listamenn eins og Hauk Morthens, Sigfús Halldórsson, Jón Sigurðsson, Svanhildi Jakobsdóttur, Ólaf Gauk, systkinin Ellý og Vilhjálm Vilhjálmsbörn, Svavar Gests, Ragnar Bjarnason, Helenu Eyjólfsdóttur, bræðurna Ingimar og Finn Eydal, Önnu Vilhjálms og Örvar Kristjánsson.

Tónlistarsafnið byggist að mestu á innrömmuðum hljómplötum, plötuumslögum, myndum og munum sem áður voru í eigu landsþekktra listamanna.

Safnið er til húsa að Reynimel, Tjarnarbraut 5 á Bíldudal.

Sími: 456-2186

Opnunartími: 1. júní til 1. Október, frá kl. 13-18 alla virka daga og eftir samkomulagi um helgar.

Fleiri staðir í nágreninu Ketildalir og SelárdalurTrostansfjörðurReykjarfjörður í ArnarfirðiListasafn Samúels í Selárdal
Prenta | Loka
Minja- og handverkshúsið Kört

Minja- og handverkshúsið Kört

Opna
Staðsetning: Trékyllisvík

Trékyllisvík er náttúruperla á Ströndum þar sem hægt er að njóta stórbrotinnar náttúru og fjölskrúðugs dýralífs. Selir, fuglar, rekaviður, klettar og fjöll setja svip sinn á svæðið. Minja og handverkshúsið Kört er staðsett í Trékyllisvík miðri, þar er að finna fallegt safn með munum frá miðöldum til okkar tíma ásamt úrvali af fallegu handverki og listmunum unnum af heimafólki. Skálar og skúlptúrar úr rekavið, textílverk og fleira. Komið og njótið lifandi leiðsagnar, skoðið fallegt handverk, fáið upplýsingar um svæðið og setjist niður með kaffibolla í fallegu umhverfi.


Staðsetning: Trékyllisvík á Ströndum
Sími:  451-4025
arnes2@simnet.is
www.trekyllisvik.is

Opnunartími:
1. júní - 1. september: 10-18 alla daga
1. september - 1. júní: eftir samkomulagi

Fleiri staðir í nágreninu BjarnarfjörðurKotbýli kuklaransDjúpavík, sögusýning
Prenta | Loka

Sjóræningjahúsið

Opna
Staðsetning: Patreksfjörður


Vorið 2008 hóf Sjóræningjahúsið á Vatneyri við Patreksfjörð starfsemi sína. Kveikjan á bak við hugmyndina eru frásagnir af sjóránum við strendur Íslands á 16. og 17. öld og verður unnið með þær frásagnir á ýmsa vegu. Í Sjóræningjahúsinu verður starfrækt sýning sem segir sögurnar á vandaðan hátt en einnig verður leikið með sjóræningjaþemað þar sem skáldskapurinn fær að ráða för.
Þar sem um stórt verkefni er að ræða verður það unnið í mörgum skrefum og var fyrsti hlutinn opnaður vorið 2008. Sá hluti er kaffihús, minjagripa- og handverksverslun og inngangur að sýningu. Vorið 2009 verður opnuð stærri sýning um sjórán og sjóræningja og fyrsti hluti útisvæðisins tekinn í notkun.

Staðsetning: Vatneyri, Patreksfirði
Sími: 456-1133
www.sjoraeningjahusid.is
Upplýsingar um opnunartíma má finna á heimsíðu Sjóræningjahússins

Fleiri staðir í nágreninu
Prenta | Loka
Snjáfjallasetur

Snjáfjallasetur

Opna
Staðsetning: Dalbær, Snæfjallaströnd
Snjáfjallasetur var stofnað í Dalbæ á Snæfjallaströnd sumarið 2003. Setrinu er ætlað að safna, skrá og varðveita sagnir, kveðskap, myndir, muni og ýmis gögn sem tengjast sögu byggðar í Snæfjalla- og Grunnavíkurhreppum og standa að sýningahaldi, útgáfustarfsemi, vefgagnasafni og ýmsum viðburðum. Byggðasögusýningin Horfin býli og huldar vættir í Snæfjalla- og Grunnavíkurhreppum hinum fornu, sem opnuð var sumarið 2002, er grunnsýning setursins, en setrið hefur einnig staðið að sýningum um Kaldalón og Kaldalóns, Spánverjavígin 1615 og Fræðslulögin 1907 auk þess að standa fyrir málþingum, tónleikum og öðrum viðburðum og gefa út bækurnar Krafturinn í ánni - Snæfjallaveita og rafvæðing Inndjúps og Undir Snjáfjöllum - þætti um búsetu og mannlíf á Snæfjallaströnd.


Staðsetning: Dalbær, Snæfjallaströnd
Sími: 698-7533
snjafjallasetur@snjafjallasetur.is
www.snjafjallasetur.is

Fleiri staðir í nágreninu Drangajökull og KaldalónNauteyriLaugaland
Prenta | Loka
Get Adobe Flash player