- Afþreying og staðir
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Fyrir alla fjölskylduna



Sumarfríið er tími fjölskyldunnar til að njóta þess að vera saman. Á Vestfjörðum gefast kynslóðunum ótal tækifæri til ánægjulegrar samveru. Þú finnur nokkrar uppástungur hér fyrir neðan. 

Hellulaug Hellulaug Hellulaug

Hellulaug

Opna
Staðsetning: Vansfjörður / Flókalundur
Hellulaug er skemmtilega staðsett í fjöruborðinu rétt fyrir innan Hótel Flókalund. Laugin er hlaðin grjóti og steyp, en engin búningsaðstaða er fyrir hendi.

Ókeypis aðgangur, hitastig um 38°C Fleiri staðir í nágreninu BreiðafjörðurVatnsfjörður
Prenta | Loka
Pollurinn Pollurinn Pollurinn

Pollurinn

Opna
Staðsetning: Tálknafjörður
Pollurinn er nokkru utan við kauptúnið Tálkafjörð og uppi í hlíðinni. Pollurinn er í raun þrískiptur, tveir setpottar og einn nokkru dýpri. Búningshús er á staðnum og er því viðhaldið af hreppnum.

Góð aðsókn er í Pollinn, bæði af Tálknfirðingum og gestum enda er stemmingin þar ótrúlega góð og ekkert jafnast á við útsýnið út á Tálknafjörðin í allri sinni dýrð

Ókeypis aðgangur. Fleiri staðir í nágreninu
Prenta | Loka
Pottarnir á Drangsnesi Pottarnir á Drangsnesi Pottarnir á Drangsnesi

Pottarnir á Drangsnesi

Opna
Staðsetning: Drangsnes
Ófáir Strandamenn hafa dregið sig saman í pottunum á Drangsnesi,enda hefur þar löngum verið samkomustaður ungs fólks á öllum aldri. Pottarnir þrír eru fyrir neðan veg nálægt sjónum og eru þeir mjög vel sýnilegir frá þorpinu og veginum. Vatnið er salt í pottunum. Vinsældir pottanna virðast síst hafa minnkað síðustu misseri þó fyrirtaks sundlaug hafi verið reist í plássinu ekki fyrir svo löngu síðan.

Ókeypis aðgangur Fleiri staðir í nágreninu BjarnarfjörðurGrímseySauðfjársetur á StröndumGaldrasafnið á HólmavíkKotbýli kuklaransDjúpavík, sögusýningFuglalífGaldrar
Prenta | Loka
Raggagarður

Raggagarður

Opna
Staðsetning: Súðavík

Upphaf fjölskyldugarðsins.
Frumkvöðull að þessum garði er formaður og framkvæmdastjóri áhuga-mannafélagsins um garðinn, Vilborg Arnarsdóttir ( Bogga ) í Súðavík.
Hún hafði lengi gengið með þá hugmynd í maganum, að reisa sumarleiksvæði sem ætlað væri til að auka fjölbreytni í afþreyingu fyrir fjölskyldur á norðanverðum Vestfjörðum.

Markmiðið með garðinum er að hlú að fjölskyldum á svæðinu og efla útiveru og hreyfingu og um leið stuðla að ánægjulegri samveru foreldra og barna. Að halda áfram uppbyggingu Súðavíkur sem ferðamannabæjar og efla afþreyingu fyrir ferðamenn á svæðinu. Bogga kannaði áhuga heimamanna á þessu verkefni og kom í ljós að heimamenn, sumarhúsaeigendur og aðrir aðilar höfðu mikinn áhuga á verkefninu. Í framhaldinu var sótt um lóð fyrir fjölskyldugarðinn til hreppsnefndar Súðavíkur.

Hugsjónin varðandi garðinn og minningin.
Nafnið á garðinum er tilkomið vegna þess að frumkvöðull félagsins fór af stað með þetta verkefni og vinnuframlag sitt til minningar um son sinn Ragnar Frey Vestfjörð sem lést í bílslysi í Súðavík 17 ára gamall, 19. ágúst 2001.
Það er hennar vilji að minningin um drenginn hennar verði til þess að fjölskyldugarður rísi á Vestfjörðum og skapi þannig fleiri tækifæri fyrir foreldra og börn til að eiga ánægjulegar stundir saman. Minningin um ungan dreng sem ekki fékk tækifæri til að lifa og verða fullorðinn maður.
Garðurinn á að vera vettvangur til að eiga ánægjulega stund með börnum okkar og barnabörnum, þar sem fjölskyldan getur glaðst saman. Garðurinn er ætlaður sem góður og gleðilegur vettvangur til að hugleiða út á hvað lífið gengur eða hvað sé okkur dýrmætast í lífinu.


Nánari upplýsingar á www.raggagardur.is

Fleiri staðir í nágreninu NaustahilftArnarnesValagilLitlibærHeydalur
Prenta | Loka
Reykjarfjörður í Arnarfirði Reykjarfjörður í Arnarfirði Reykjarfjörður í Arnarfirði

Reykjarfjörður í Arnarfirði

Opna
Staðsetning: Arnarfjörður
Laugin er rétt við þjóðveginn og í hana rennur allt árið. Hægt er að skipta um föt í litlum kofa sem stendur við laugarbakkann. Rétt fyrir ofan laugina er lítil hlaðin setlaug sem er nokkuð heit, þótt flestir geti baðað sig í henni, a.m.k. í stutta stund.

Ókeypis aðgangur. Fleiri staðir í nágreninu ArnarfjörðurKetildalir og SelárdalurMelódíur minningannaListasafn Samúels í Selárdal
Prenta | Loka

Heydalur

Opna
Staðsetning: Heydalur í Mjóafirði við Ísafjarðardjúp

Heiti potturinn í Heydal er náttúrulaug í stuttu göngufæri frá Sveitahótelinu í Heydal. Gott era ð enda ánæjulegan dag með því að finna þreytuna líða úr sér í þessum náttúrupotti sem sumir segja færi gestum kraft.

Hér á eftir er úrdráttur úr viðtali við Stellu Guðmundsdóttir gestgjafa í Heydal sem birtist í ferðablaði Markaðsstofu Vestfjarða vorið 2008.

„Gestum finnst forvitnilegt að gista í fjósi og borða í gamalli hlöðu,“ segir Stella Guðmundsdóttir, gestgjafi í Heydal. Hún rekur þar ásamt fjölskyldu sinni fjölþætta ferðaþjónustu. „Sumarið leggst afar vel í okkur. Pantanir lofa góðu og það verður nóg um að vera í allt sumar,“ Í Heydal er meðal annars boðið upp á gistingu, tjaldsvæði, veitingar, kajakróður og hestaferðir. „Dalurinn er algjör perla. Ef gengið Er með fram ánni inn dalinn sem er kjarri vaxinn má sjá nokkur gil og í innsta gilinu eru margir litlir fossar. Einnig er gaman að ganga upp á fjöllin og yfir í næstu firði.“Góð aukning var á tjaldsvæðinu á síðasta sumri. „Við höfum gert mikið fyrir svæðið, gróðursett tré, komið fyrir leiktækjum og sett upp salerni og heitar sturtur,“ .„Svo er það að sjálfsögðu heita náttúrulaugin sem er alltaf vinsæl enda talið að Guðmundur góði hafi vígt hana og á hún að vera hin mesta heilsulind.“

Fuglaskoðun og gæðamál
„Við höfum alla tíð lagt áherslu á vöruþróun og gæðamál. Í ár verða nokkur skref stigin í þá veru. 2007 fengum við styrk frá Ferðamálaráði til að gera upplýsingaspjöld um þá fugla sem sjá má í Heydal og nágrenni. Í tengslum við það höfum við keypt sjónauka og unnið þannig að því að fjölga ferðamönnum sem koma til okkar gagngert til að skoða fugla, sem og að benda almennum ferðamönnum á þann fjársjóð sem í fuglunum felst. Spjöldin voru vígð í Júní sl. sumar og af því tilefni var ýmislegt við að vera, svo sem samkeppni um bestu fuglavísuna, skemmtilegustu fuglamyndina og fleira,“ segir Stella. „Og gæðamálin skipa ekki síðri sess. Við erum í verkefni Félags ferðaþjónustubænda og Ferðaþjónustu bænda sem heitir „Gerum góða gistingu betri.“ Þá verðum við líklega fyrst vestfirskra ferðaþjónustufyrirtækja til að fá Green Globe vottun sem vistvæn ferðaþjónusta, en það ferli er nú á lokastigi,“ segir Stella að lokum.

Fleiri staðir í nágreninu LitlibærVatnsfjörður í ÍsafjarðardjúpiRaggagarðurFuglalífHörgshlíð
Prenta | Loka
Hörgshlíð

Hörgshlíð

Opna
Staðsetning: Mjóifjörður í Ísafjarðardjúpi
Laugin er neðan vegar í flæðarmálinu stutt fyrir innan Hörgshlíðarbæinn í Mjóafirði. Laugin er steypt og við enda hennar er lítill búningsskúr. Töluverð aðsókn er að lauginni, stundum nokkrir tugir gesta á dag,bæði sumar og vetur.

Laugin er í eigu ábúenda í Hörgshlíð og þarf leyfi til að nota laugina. Skilti er við laugina með upplýsingum hvernig á að bera sig að. Fleiri staðir í nágreninu LitlibærVatnsfjörður í ÍsafjarðardjúpiHeydalur
Prenta | Loka

Laugaland

Opna
Staðsetning: Ísafjarðardjúp
Laugalandslaug er við bæinn Laugarás í Skjaldfannardal. Laugin er um 10 m löng. Engin búningsaðstaða er á staðnum.

Aðgangur er ókeypis en biðja þarf um leyfi hjá Þórði í síma 456-4848. Fleiri staðir í nágreninu SnjáfjallaseturDrangajökull og KaldalónVatnsfjörður í ÍsafjarðardjúpiHornstrandirNauteyri
Prenta | Loka
Náttúrugripasafn Bolungarvíkur

Náttúrugripasafn Bolungarvíkur

Opna
Staðsetning: Bolungarvik

Náttúrugripasafnið var stofnað árið 1998 og er tileinkað Steini Emilssyni náttúrufræðingi og skólastjóra í Bolungarvík. Safngripum er komið fyrir í rúmlega 300m2 sérútbúnum sýningarsal og þar gefur að líta steinasafn Steins ásamt fleiri munum úr hans eigu. Safnið hýsir einnig eitt stærsta safn uppstoppaðra fugla á Íslandi auk villtra land og sjávarspendýra, m.a. uppstoppaðan ísbjörn. Safnið býður til sölu úrval minjagripa og handbóka tengdum náttúru Vestfjarða. Við safnið er hliðarsalur fyrir fyrirlestra og sérsýningar.

Staðsetning: Vitastígur 3, 415 Bolungarvík.
Sími:  456-7507, 456-7005. 
nagr@nave.is,  
www.natturugripasafn.is
Opnunartími: 9 – 12 og 13-17.
Helgaropnun:15. júní – 30 ágúst : 13 -17 og  eftir samkomulagi.

 

Fleiri staðir í nágreninu Bolafjall og SkálavíkSjóminjasafnið - Byggðasafn Vestfjarða Gamla sjúkrahúsið - Safnahúsið Eyrartúni
Prenta | Loka
Nauteyri

Nauteyri

Opna
Staðsetning: Ísafjarðardjúp
Laugin er rétt fyrir ofan veginn inn á Bæi, ofan Nauteyrar, innst í Ísafjarðardjúpi. Steinsnar frá er einnig heitur pottur.

Aðgangur ókeypis. Fleiri staðir í nágreninu SnjáfjallaseturDrangajökull og KaldalónVatnsfjörður í ÍsafjarðardjúpiHornstrandirLaugaland
Prenta | Loka
Sauðfjársetur á Ströndum

Sauðfjársetur á Ströndum

Opna
Staðsetning: Í Steingrímsfirði, skammt frá Hólmavík

Sauðfjársetur á Ströndum er skemmtilegt safn fyrir alla fjölskylduna í félagsheimilinu Sævangi rétt sunnan við Hólmavík. Safnið fjallar um sauðfjárbúskap fyrr og nú frá öllum mögulegum hliðum og þar er margt sem kemur á óvart. Í Sauðfjársetrinu er notaleg kaffistofa, glæsileg handverksbúð með einstöku handverki heimamanna, vísindahorn fyrir fræðimennina, barnahorn með fullt af leikföngum fyrir yngstu kynslóðina, eldhressir heimalningar sem eru sólgnir í mjólk úr pela og margt fleira sem gleður unga sem aldna.

Staðsetning: Við Steingrímsfjörð, í nágrenni Hólmavíkur
Sími: 451-3324, 661-2009
saudfjarsetur@strandir.is
www.strandir.is/saudfjarsetur

Opnunartími yfir sumarið: Alla daga frá 10:00-18:00
Opnunartími yfir veturinn: Eftir samkomulagi

Fleiri staðir í nágreninu Galdrasafnið á HólmavíkPottarnir á Drangsnesi
Prenta | Loka
Get Adobe Flash player